Hanna Katrín: Sjálfstæðisflokknum ekki treystandi til að selja ríkiseignir

Þing­flokks­for­maður Við­reisnar segir að sala rík­is­ins á hlut í Íslands­banka sé „sann­ar­lega dýr­keypt mis­tök fyrir íslenskt sam­fé­lag“. Rík­is­stjórnin eigi eftir að svara því hvort afleið­ingar mis­tak­anna verði minni upp­bygg­ing inn­viða eða skatta­hækk­anir.

Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar fjall­aði um Íslands­banka­söl­una undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Salan hefur mikið verið í umræð­unni und­an­farna daga og vikur en í morgun mættu stjórn­ar­for­maður og for­maður Banka­sýslu rík­is­ins fyrir fjár­laga­nefnd. Málið virð­ist jafn­framt hafa áhrif á stuðn­ing við rík­is­stjórn­ina en sam­kvæmt nýrri könnun mælist sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­innar undir 40 pró­sent og hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aldrei mælst minni í stórri könnun.

Hanna Katrín sagði í ræðu sinni að stjórn­ar­meiri­hlut­inn hefði verið sam­stiga í mön­tr­unni um að horfa þyrfti á það sem þau köll­uðu „stóru mynd­ina í Íslands­banka­söl­unni“ – að ríkið hefði jú á innan við ári fengið 108 millj­arða í sinn hlut við söl­una.

„Þjóðin er hins vegar greini­lega sam­mála því sem Viðreisn hefur alltaf sagt í þessu sam­hengi; það þarf að horfa á enn stærri mynd, mynd sem tekur líka með í reikn­ing­inn sið­ferði­lega ábyrgð, sið­ferði­lega ábyrgð stjórn­valda á því að vel tak­ist til.

Stjórn­ar­meiri­hlut­inn seg­ist sáttur við fjár­hags­legu mark­miðin sem náð­ust, segir minna um önnur mark­mið banka­sölu hennar, þau sem varða almanna­hags­muni, gegn­sæi, jafn­ræði, traust. En kannski eiga þessi mark­mið ekk­ert heima í hinni stóru mynd rík­is­stjórn­ar­innar,“ sagði Hanna Katrín.

Benti hún á að sölu­and­virði upp á 108 millj­arða króna væru fjár­munir sem nýta mætti í nið­ur­greiðslu á halla rík­is­sjóðs sem rík­is­stjórnin hefði ekk­ert gert til að vinna á frá upp­hafi stjórn­ar­sam­starfs­ins, svo ekki væri talað um inn­viða­fjár­fest­ingu sem hefði verið van­rækt í tíð þess­arar rík­is­stjórnar.

Salan þurfi að vera í þágu almennings

„Því miður hefur rík­is­stjórnin klúðrað þessu verk­efni undir verk­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Rík­is­stjórnin huns­aði sið­ferði­lega hluta Banka­sýsl­unnar með þeim fyr­ir­sjá­an­legu og eðli­legu afleið­ingum að traust þjóð­ar­innar er rofið.

Traust þjóð­ar­innar er ekk­ert. Í kjöl­farið er sala á þeim hluta banka sem eftir stendur í eigu rík­is­ins fyrir bí og þar með sú 100 millj­arða fjár­fest­ing í innviðum og nið­ur­greiðslu skulda sem var fyr­ir­huguð til við­bótar. Og þetta eru sann­ar­lega dýr­keypt mis­tök fyrir íslenskt sam­fé­lag. Rík­is­stjórnin á eftir enn að svara því hvort afleið­ingar mis­tak­anna verði minni upp­bygg­ing inn­viða, skatta­hækk­anir eða eitt­hvað annað,“ sagði hún.

Hanna Katrín telur að lær­dóm­ur­inn sé sá að Sjálf­stæð­is­flokknum sé ekki treystandi til að selja rík­is­eignir. „Þar gleym­ist það lyk­il­at­riði sem Viðreisn hefur alla tíð lagt áherslu á þegar kemur að sölu rík­is­eigna: Salan þarf að vera í þágu almenn­ings, ekki útval­inna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár