Ríkisstjórnin kolfallin og Sjálfstæðisflokkur mælist með undir 18 prósent fylgi

Sam­fylk­ing og Píratar bæta við sig ell­efu þing­mönnum frá síð­ustu kosn­ingum sam­kvæmt nýrri könnun en stjórn­ar­flokk­arnir tapa tólf. Sam­an­lagt fylgi rík­i­s­tjórn­ar­innar mælist undir 40 pró­sent og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur aldrei mælst minni í stórri könnun.

Það er vindasamt á stjórnarheimilinu þessa dagana.
Það er vinda­samt á stjórn­ar­heim­il­inu þessa dag­ana. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er kol­fall­inn sam­kvæmt nýrri könnun Prósents um fylgi flokka sem birt er í Frétta­blað­inu í dag. Flokk­arnir þrír sem hana mynda: Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn, myndu tapa tólf þing­mönnum ef kosið yrði í dag og fá 26.

Ellefu af þeim tólf þing­mönnum myndu fær­ast yfir til Sam­fylk­ingar og Pírata og einn til Við­reisnar. Þeir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar mæl­ast nú með 29 þing­menn, eða þremur fleiri en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir.

Fylg­is­hrun rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, sem sam­an­lagt mæl­ast nú með 39,9 pró­sent fylgi – 14,4 pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu kosn­ingum – má senni­lega að mestu rekja til mik­illar óánægju með fram­kvæmd sölu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka 22. mars síð­ast­lið­inn.

Í nýlegri könnun sögð­ust 83 pró­sent aðspurðra vera óánægð með þá fram­kvæmd og í könnun Maskínu sem birt var í fyrra­dag kom fram að traust á helstu ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar hefur hrunið.

Sjálfstæðisflokkurinn aldrei mælst með minna fylgi

Mestu fylgi tapar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Hann mælist með 17,9 pró­sent fylgi sem myndi skila tólf þing­mönnum. Flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2021 og tapar því 6,5 pró­sentu­stigum.

Það er í fyrsta sinn sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með undir 18 pró­sent fylgi í stórri fylgiskönnun. Til sam­an­burðar fór fylgi hans lægst niður í 20,6 pró­sent í einni könnun Gallup skömmu eftir banka­hrunið síðla árs 2008, lægst í 22,2 pró­sent í kringum birt­ingu Panama­skjal­anna í apríl 2016 og lægst í 22,6 pró­sent í kringum upp­reist æru málið haustið 2017, en öll þessi mál felldu rík­is­stjórn og leiddu til snemm­bú­inna kosn­inga.

Flokk­ur­inn hefur einu sinni áður mælst með undir 19 pró­sent fylgi í stórri könnun. Það var í könnun MMR sem birt var í nóv­em­ber 2019, skömmu áður en að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall. Þá mæld­ist fylgið 18,1 pró­sent.

Fylgi Vinstri grænna og Framsóknar minnkað umtalsvert

Hinir stjórn­ar­flokk­arnir tveir tapa líka miklu fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur tapað 4,9 pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum í fyrra­haust og mælist með 12,4 pró­sent fylgi. Hann er nú umtals­vert minni en bæði Sam­fylk­ing og Píratar sam­kvæmt mæl­ingum og fengi átta þing­menn í stað 13 ef kosið yrði í dag.

Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, mælist með 9,6 pró­sent fylgi sem er þremur pró­sentu­stigum minna en þau fengu upp úr kjör­köss­unum í sept­em­ber 2021. Það myndi skila sex þing­mönnum, eða tveimur færri en Vinstri græn hafa í dag. Flokk­ur­inn deilir nú 5-6 sæti yfir stærstu flokka á þingi með Viðreisn.

Samfylking og Píratar græða mest fylgi

Þeir flokkar sem hafa grætt mest fylgi á því sem hefur gerst að und­an­förnu eru Sam­fylk­ingin og Píratar. Sá fyrr­nefndi mælist nú næst stærsti flokkur lands­ins með 16,8 pró­sent fylgi, sem er 6,9 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2021. Það þýðir að Sam­fylk­ingin mælist með um einu pró­sentu­stigi minna fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem er munur innan skekkju­marka. Ef kosið yrði í dag, og nið­ur­staðan yrði í takt við könnun Prósents, myndi Sam­fylk­ingin fá jafn marga þing­menn og Sjálf­stæð­is­flokkur, eða tólf tals­ins. Við það myndi þing­flokk­ur­inn tvö­fald­ast að stærð, en hann telur sex í dag.

Píratar hafa bætt enn meira við sig frá síð­ustu kosn­ingum, alls 7,4 pró­sentu­stigum, og mæl­ast nú með 16,2 pró­sent fylgi. Það myndi skila flokknum ell­efu þing­mönnum að óbreyttu sem er fimm fleiri en Píratar hafa nú.

Viðreisn bætir líka við sig fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og mælist 9,6 pró­sent. Það myndi skila flokknum sex þing­mönnum í stað þeirra fimm sem hann hefur í dag.

Sam­an­lagt fylgi þess­ara þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka mælist nú 42,6 pró­sent, eða 15,8 pró­sentu­stigum meira en það sem þeir fengu í kosn­ing­unum í fyrra­haust.

Þeir mæl­ast nú með meira sam­eig­in­legt fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir og með þremur þing­mönnum fleiri.

Miðflokkurinn nær ekki inn manni

Hinir tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, Flokkur fólks­ins og Mið­flokkur, hagn­ast ekki á stöðu mála. Sá fyrr­nefndi myndi tapa einu pró­sentu­stigi af fylgi frá síð­asta hausti ef kosið yrði í dag og fá fimm þing­menn, sem er einum færri en þá. Mið­flokk­ur­inn rétt skriði yfir fjögur pró­sent atkvæða sem myndi ekki duga honum inn á þing.

Flokk­arnir yrðu þó áfram átta á Alþingi ef nið­ur­stöður kosn­inga yrðu í sam­ræmi við könnun Prósents því að Sós­í­alista­flokk­ur­inn kæm­ist inn með 5,4 pró­sent atkvæða, tæki báða þing­menn Mið­flokks­ins og einn frá Flokki fólks­ins.

Könnunin var fram­kvæmd 13. til 26. apríl og úrtak hennar var 3.500 manns. Svar­hlut­fallið var 50,3 pró­sent og um net­könnun var að ræða úr könn­un­ar­hópi Prósents.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár