Óvænt líf fannst í blómapotti

Kristínu Auði Kelddal, skrúð­garðyrkju­meistara, brá heldur betur í brún í gærmorgun þegar hún ætlaði að skipta um mold í blóma­potti.

Kristínu Auði Kelddal, skrúð­garðyrkju­meistara, var heldur betur brugðið í gær þegar hún ætlaði að skipta um mold í blóma­potti einum sem hún geymir út í glugga á heimili sínu í Hafnar­firði. „Ég fann hann nýfæddan,“ segir Kristín um músarunga sem hún fann, móðurlausann og yfir­gefinn í moldinni. „Ekki sáði ég fyrir honum,“ segir garðyrkju­meistarinn og hlær. Kristín segir móður ungans sjálfsagt ekki hafa náð í holuna sína í tæka tíð þegar hún er spurð hvernig þetta bar að garði. En Kristín hefur ásamt Heiðrúnu dóttur sinni ákveðið að hjúkra unganum til lífs.

Kristín hafði samband við dýra­spítala stuttu eftir fundinn. „Ég treysti mér varla sjálf að halda honum á lífi og spurði hvort þau vildu taka hann og sjá um hann því þar væri náttúru­lega allt til alls.“ Dýra­spítalinn sagðist ekki hafa aðstöðu eða tíma til að annast ungann. Kristínu þótti afar skrýtið að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár