Samtök iðnaðarins vilja að þjóðin ráði um framhald ESB-viðræðna

„Nauðsynlegt er að tryggja að framhald aðildar­viðræðna við ESB (Evrópu­sambandið) verði lagt í dóm þjóðarinnar.“ Svo segir í frétta­tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins (SI) sem send var fjöl­miðlum í morgun.

Þá segir í tilkynningunni: „Ferli ákvarðana ríkis­valdsins á að vera opið og byggjast á málefnalegri nálgun þannig að fólk og fyrirtæki geti verið sátt við afgreiðslu þótt þau séu ekki endilega sammála endanlegri niður­stöðu. Opinber umræða undan­farna daga um stöðu aðildar­umsóknar Íslands að ESB er því miður ekki dæmi um málefna­lega nálgun.“

Frjáls og óhindruð viðskipti og aðgangur að erlendum mörkuðum eru lífæð íslenskra fyrir­tækja að mati SI. Þar skipti EES-samningurinn sköpum en óvíst sé hvort hann einn og sér þjóni hagsmunum Íslands til lengri tíma litið.

Í tilkynningu SI er haft eftir Guðrúnu Hafsteins­dóttur formanni samtak­anna: „Það eru 1.300 fyrirtæki innan vébanda Samtaka iðnaðarins. Það er ljóst að alþjóða­samningar hafa mikil áhrif á rekstrar­umhverfi þeirra, en mismikið þó. Því eru skoðanir þeirra skiptar um aðild að Evrópu­sambandinu, en sameiginlega trúum við að lýðræðislegt ferli sé best til þess fallið að leiða málið til lykta. Málið þarf að vinnast þannig að sátt geti skapast um niður­stöðuna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár