Tvö ný innanlandssmit í gær

Tveir einstak­lingar greindust með COVID-19 í gær. Um er að ræða innan­landssmit og hafa nokkrir tugir manna verið settir í sóttkví vegna smitanna. Smit­rakningu er þó ekki lokið.

Tvö innan­landssmit af Covid-19 greindust á Íslandi í gær í tveimur aðgreindum málum. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá Almanna­vörnum og embætti land­læknis.

Þar segir að báðir einstaklingar séu með einkenni Covid-19 veirunnar og komnir í einangrun.

„Í öðru málinu hafa nokkrir verið settir í 14 daga sóttkví. Í hinu málinu hafa á þriðja tug verið settir í sóttkví. Þar hafði einstaklingur tekið þátt í frjáls­íþróttamóti í Hafnar­firði um síðustu helgi. Þeir sem voru útsettir fyrir smiti eru komnir í 14 daga sóttkví en smit­rakningu er þó ekki lokið," segir í tilkynningunni.

Frjáls­íþrótta­samband Íslands er meðvitað um stöðuna og vinnur nú að því að gera viðeigandi ráðstafanir. Mótið sem um ræðir er Meistaramót Íslands 15-22 ára sem haldið var í Kapla­krika, en þar öttu yfir 200 ungmenni frá félögum af öllu landinu kappi.

Almanna­varna­deild ríkis­lögreglu­stjóra og embætti land­læknis biður fólk sem sótti umrætt frjáls­íþróttamót að gæta varúðar og huga að einstaklings­bundnum smit­vörnum. „Leiki minnsti vafi á hvort einkenni Covid-19 veirunnar séu til staðar er sá hinn sami beðinn um að fara í sýnatöku á næstu heilsu­gæslustöð," segir í tilkynningunni.

Síðast kom fram innan­landssmit hér á landi 2. júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár