Niðurstöður rannsóknar Wikborg Rein brátt kynntar stjórn Samherja

Samherji segir að búist sé við því að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins fái kynn­ingu á nið­ur­stöðum rann­sóknar norsku lög­fræði­stof­unnar Wikborg Rein innan skamms. Í kjöl­farið verði skoðað hvað úr rann­sókn­inni verði hægt að birta og hvernig.

Þorsteinn Már Baldvinsson situr nú í forstjórastóli Samherja ásamt Brynjólfi Jóhannssyni.
Þor­steinn Már Bald­vins­son situr nú í for­stjóra­stóli Samherja ásamt Brynjólfi Jóhanns­syni. Mynd: Samherji

Lögmenn norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein munu innan skamms kynna nið­ur­stöður rann­sóknar sinnar á starf­semi Samherja í Namibíu fyrir stjórn sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins, en rann­sóknin er, sam­kvæmt svari Samherja við fyr­ir­spurn Kjarnans, á loka­metr­unum.

Þar hefur hún raunar verið um nokk­urt skeið, en nokkur dráttur hefur orðið á vinn­unni vegna ferða­tak­mark­ana af völdum heims­far­ald­urs­ins. Í jan­úar áætl­aði Wikborg Rein að rann­sókn fyr­ir­tæk­is­ins, sem unnin er að beiðni Samherja, yrði lokið í apríl.

Fram hefur komið Samherji setti sig í sam­band við norsku lög­manns­stof­una um það bil viku áður en ásak­anir um meintar mútu­greiðslur og aðra hátt fyr­ir­tæk­is­ins í tengslum við starf­sem­ina í Namibíu komu fram í umfjöll­unum Kveiks, Stund­ar­innar og Wikileaks í nóv­em­ber í fyrra.

Er Samherji til­kynnti svo skömmu síðar að fyr­ir­tækið ætl­aði að fá Wikborg Rein til þess að vinna fyrir sig rann­sókn á mál­inu sagði fyr­ir­tækið að í rann­sókn­inni yrði ekk­ert und­an­skilið og að upp­lýst yrði um nið­ur­stöður hennar þegar þær lægju fyrir.

Á þeim tíma tóku flestir því þannig að upp­lýst yrði um nið­ur­stöð­una opin­ber­lega. Sá var einnig skiln­ingur Elisa­beth Roscher, eins eig­anda Wikborg Rein, sem veitti mbl.is við­tal um rann­sókn lög­fræði­stof­unnar 27. nóv­em­ber.

„Ég byggi svör mín hér á því sem fyr­ir­tækið hef­ur sagt, og fyr­ir­tækið hef­ur sagt að það vilji láta yf­ir­völd hafa aðgang að öll­um stað­reynd­um sem rann­sókn­in leiði í ljós og síðan upp­lýsa al­menn­ing um niður­stöð­una einnig. Það er það sem þeir hafa sagt og ég hef enga ástæðu til þess að ef­ast um að það sé það sem þeir ætli sér,“ sagði Roscher, en lét þess einnig getið að mis­mun­andi væri hversu mikil smá­at­riði fyr­ir­tæki gæfu upp í kynn­ingum sínum á rann­sóknum sem þess­ari.

Skoða hvað verði hægt að birta og hvernig

Kjarninn spurði Samherja að því hvort búið væri að taka ákvörðun um hvort rann­sókn Wikborg Rein á namibíska hluta starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins yrði gerð opin­ber.

Í svari Samherja segir að eftir að nið­ur­stöð­urnar verði kynntar stjórn Samherja muni full­trúar Wikborg Rein „funda með full­trúum þeirra stjórn­valda sem hafa málið til skoð­unar og fara yfir hvort og hvernig nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar geti gagn­ast við­kom­andi stjórn­völdum.“

„Líkt og áður hefur verið greint frá verður í kjöl­farið tekið til greina hvað hægt er að birta og hvernig. Í því sam­bandi þarf að meta hvort birt­ing á upp­lýs­ingum úr nið­ur­stöðum Wikborg Rein kunni að hafa áhrif á rann­sóknir í öðrum ríkjum. Þá þarf að meta hvort birt­ing á upp­lýs­ingum gangi í ber­högg við lög og reglur vegna þeirra ein­stak­linga sem verða nafn­greindir. Þá eru ýmis fleiri atriði sem þarf að taka til skoð­unar í því sam­bandi,“ segir í svari Samherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár