Tíu verkefni valin til þátttöku í Startup Reykjavík

Í áttunda skipti fer Startup Reykjavík hraðallinn nú fram.

Viðskipta­hraðallinn Startup Reykjavík fer fram í áttunda skipti í sumar en verkefnið hefur fest sig í sessi sem eftir­sóttur vettvangur fyrir sprota­fyrirtæki sem vilja þróa áfram viðskipta­hugmyndir sínar og hraða vexti undir leiðsögn sérfræðinga.

Tíu verkefni hafa nú verið valin áfram til þátttöku í hraðlinum, en tilkynnt var um þau í dag.

Fyrir­tækin tíu njóta leið­sagnar reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annara sérfræðinga yfir tíu vikna tímabil í þeim tilgangi að þróa áfram viðskipta­hugmyndir sínar, undirbúa markaðs­sókn og hraða vexti. Í gegnum dóttur­félagið Startup Reykjavík Invest ehf. fjár­festir Arion banki í hverju fyrirtæki fyrir 2,4 milljónir króna gegn 6 prósent eignar­hlut.

Frá árinu 2012 hafa 68 fyrirtæki tekið þátt í Startup Reykjavík og er rúmlega helmingur þeirra enn starfandi. Alls hafa þau fengið um fjóra milljarða íslenskra króna í fjár­mögnun, þar af er um 65% hlutafé og 35% styrkir.

„Lögð er áhersla á að velja til þátttöku öflug teymi með nýjar lausnir ætlaðar alþjóða­markaði,“ segir í tilkynningu.

Alls bárust um 200 umsóknir og vekur það athygli að fyrir­tækin sem valin hafa verið eru lengra komin en oft áður, flest þeirra hafa nú þegar hafið starfsemi og eru byrjuð að afla tekna.

Startup Reykjavík er samstarfs­verkefni Arion banka og Icelandic Startups. Arion banki fjár­magnar verkefnið og fjár­festir í þeim fyrir­tækjum sem taka þátt. Icelandic Startups hefur umsjón með verk­efninu sem hefst þann 11. júní n.k.

Þátt­takendur Startup Reykjavík 2019:

Baseparking

Bílastæða­þjónusta á Kefla­víkur­flugvelli sem hefur þjónustað yfir 20.000 viðskipta­vini.

CheckMart

Skilvirkt innviða- og vistkerfi fyrir stafrænar verslanir.

Hvísl­arinn

Hugbúnaðar­lausn sem stuðlar að betri og öruggari þjónustu við sjúklinga með því að nýta snjall­tækni, sjálf­virkni og gervi­greind til að auka tíma­nýtingu og skilvirkni heilbrigðis­starfsfólks.

Íslensk Gervi­greind

Stafrænn starfs­maður í skýinu sem einfaldar verkferla og þjónustu fyrir­tækja.

Proency

Heilsu­tæknilausn fyrir fagfólk sem nýtir gervi­greind til þess að auka skilvirkni sálfræðilegra aðferða og auðvelda innleiðingu heilsu­eflingu innan fyrir­tækja.

Rafíþróttaskólinn

Félags­legur og stuðnings­ríkur vettvangur fyrir rafíþrótta­spilara til þess að efla iðkendur félags­lega og hjálpa þeim að stíga sín fyrstu skref í sínum rafíþróttaferli.

Rebutia

Gervi­greindar hugbúnaður sem velur fatnað út frá ítarlegri greiningu á líkams­byggingu notenda og hjálpar þeim að uppgötva fatastíl sem er sniðinn að þörfum hvers og eins.

SmartSampling

Hugbúnaður fyrir vöru­kynningar­fyrirtæki sem býður upp á betri og skilvirkari leið til þess að fá upplýsingar frá viðskipta­vinum um vörur.

Snorricam

Háþróað tól fyrir kvik­myndatöku sem fest er á líkamann og gerir kvik­myndagerðar­fólki kleift að ná einstökum sjónar­hornum.

TrackEHR

Hugbúnaðar­lausn til að miðla upplýsingum um meðferðar­plan og sjúkdóms­gang á öruggan og skilvirkan hátt til inni­liggjandi sjúklinga á sjúkra­húsum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár