Þinglýstir kaupsamningar ekki verið fleiri í stökum mánuði síðan 2007

Mikill fjöldi íbúða sem hafa verið teknar úr sölu gefur til kynna mikla grósku í sölu á fasteignum. Kaup­samningar hafa ekki verið fleiri síðan árið 2007.

Í mánaðar­skýrslu hagdeildar HMS um húsnæðis­markaðinn kemur fram að mikið líf sé á fasteigna­markaði. Dýrari eignir eru að seljast hraðar en áður. Á landinu öllu í júlí voru til að mynda 1.219 kaup­samningar um íbúðar­húsnæði gefnir út, sem er rúmlega 30% meira en á sama tíma í júlí í fyrra. Fjöldi útgefinna samninga í júlí á þessu ári eru fleiri en þeir sem hafa verið í stökum mánuði frá árinu 2007. Breytinguna má líklegast rekja til þess að vextir á óverðtryggðum íbúða­lánum er í sögulegu lágmarki, segir í skýrslunni.

Eignum á sölu fækkar hratt

Í september voru 1.117 íbúðir teknar úr birtingu á höfuð­borgar­svæðinu sem er samkvæmt skýrslunni metfjöldi. Það nemur 15% aukningu frá því í ágúst og enn fremur 54% aukningu frá því í september í fyrra.

Fleiri íbúðir hafa verið teknar úr birtingu en hafa verið auglýstar frá því í sumar­byrjun. Sökum þess hefur verulega dregið úr þeim íbúðum sem auglýstar eru til sölu eða um 24% á landsvísu og 30% á höfuð­borgar­svæðinu. Þá hefur nýjum íbúðum til sölu fækkað um 36% á höfuð­borgar­svæðinu og rúmlega 20% annars staðar.

Meðalsölutími fasteigna styttist

Undan­farna mánuði hefur meðal­sölutími fasteigna verið sögulega stuttur. Þar má helst nefna meðal­sölutíma dýrari eigna en á sama tíma hefur fasteigna­verð hækkað mikið. Hækkun íbúða­verðs á ársgrundvelli mældist 4,5% í ágúst síðastliðinn en íbúðaverð hefur hækkað stöðugt síðan í byrjun árs. 

Meðal­sölutími nýrra íbúða á höfuð­borgar­svæðinu var að jafnaði 58 dagar í ágúst og 46 dagar fyrir aðrar íbúðir. Á öðrum stöðum á landinu tók 84 daga að selja nýjar íbúðir og 68 að selja aðrar. Í ágúst á þessu ári var meðal­sölutími íbúða sem seldust á 90 til 120 milljónir króna lægri en þeirra sem seldust á bilinu 35 til 90 milljónir króna.

Í því samhengi má nefna að um 33% allra seldra íbúða á höfuð­borgar­svæðinu seldust á eða yfir ásettu verði í ágúst. Í janúar var hlut­fallið 25% og hefur ekki verið hærra síðan haustið 2017. 

Lántökur aukast

Umfangs­mesti mánuður í útláni bankanna frá upphafi mælinga var nú í ágúst. Frá því í apríl hefur hver mánuður slegið met í hreinum nýjum útlánum bankanna.

Í júlí námu hrein ný útlán bankanna á óverðtryggðum lánum um 42,1 milljörðum. Á sama tíma voru verð­tryggð lán neikvæð um 5,6 milljarða.

Þess ber að geta að umsvif lífeyris­sjóðanna á lána­markaði hafa ekki verið minni síðan árið 2013, eða eins langt og gögn HMS ná. Bankarnir hafa verið að bjóða betri kjör á lánum en lífeyris­sjóðirnir, en vextir bankanna á óverðtryggðum lánum eru í sögulegu lágmarki. Kaupendur hafa því í ríkara mæli fært sig úr verð­tryggðum lánum yfir í óverðtryggð.

Á sama tíma eru breyti­legir vextir lægri en þeir föstu og því hefur mesta aðsóknin verið í óverðtryggð lán með breyti­legum vöxtum. Breyti­legir eru þó einkar næmir fyrir stýrivaxta­breytingum og geta því breyst með litlum fyrirvara.

Leigan lækkar

Hvað leigu­markaðinn varðar hefur hægst á vexti leigu­verðs á landsvísu og þá sérstak­lega á höfuð­borgar­svæðinu. Vísitala leigu­verðs á því svæði hefur farið lækkandi frá því í apríl. Þó svo að tólf mánaða breyting vísi­tölunnar hafi hækkað ögn milli mánaða mælist hún einungis um 1,2%, sem samkvæmt skýrslunni, telst mjög lágt í sögulegu samhengi. 

Eins og kemur fram í skýrslunni hefur framboð á húsnæði í lang­tímaleigu aukist vegna samdráttar á skamm­tímaleigu­markaði, sem hefur að mestum líkindum haft áhrif á þessa lækkun. Leigjendur er því að borga svipað leiguverð og árið 2018. Fermetra­verð á leigu­íbúðum fer eftir því hvar þær er að finna en í póst­númeri 101 Reykjavík er verðið 3.100 krónur á fermetra á meðan í útjaðri borgarinnar er verðið um 2.500 krónur á fermetrann.

Á  sama tíma og leiguverð hefur lækkað hefur kaup­máttur launa aukist en í apríl síðastliðnum mældist hann hærri en nokkru sinni áður. Hann hefur þó lækkað lítillega eftir það.

Samkvæmt leigu­könnunum HMS hefur hlutfall ráðstöfunar­tekna sem fara í leigu verið í kringum 40% undan­farin ár. Miðað við skilgreiningu Eurostat er húsnæðis­kostnaður yfir 40% af ráðstöfunar­tekjum skilgreindur sem íþyngjandi byrði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár