Evrópudómstóllinn: Tíminn til og frá vinnu er vinnutími

Starfs­fólk sem ekki hefur fasta vinnu­skrifstofu er sannarlega í vinnunni þegar það ferðast til og frá vinnu á daginn, samkvæmt niður­stöðu Evrópu­dómstólsins. Dómstóllinn sagði niður­stöðuna mikilvæga til að vernda heilsu og öryggi starfs­fólks en samkvæmt frétt BBC um málið varðar það milljónir starfs­manna í Evrópu, til dæmis iðnaðar­menn og sölumenn.

Upphaf málsins má rekja til starfsmanna­deilna innan spænska fyrir­tækisins Tyco, sem selur og setur upp öryggis­kerfi. Fyrir­tækið lokaði skrif­stofum sínum árið 2011 og lét starfs­menn þess í stað ferðast til vinnu, hvar sem hún var hverju sinni, beint frá heimilum sínum. Var það niður­staða Evrópu­dómstólsins að starfs­menn væru vissulega í vinnunni þegar þeir ferðast til og frá heimili sínu í þessum tilvikum og væri nauðsynlegt skilgreiningar­atriði til að tryggja heilsu og öryggi þeirra, enda ættu starfs­menn ekki að bera ábyrgð á ákvörðun vinnu­veitenda um að hafa ekki fasta vinnu­aðstöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár