Átta létust í árásum Bandaríkjanna á þrjú skip í Kyrrahafi

Síðan í september hefur bandaríski herinn sökkt að minnsta kosti 26 skipum. 95 manns hafa látist í þessum aðgerðum hersins.

Hervald
Hervald Banda­ríkja­her, undir stjórn Pete Hegseth, varn­ar­mála­ráð­herra, hefur beint spjótum sínum að skipum sem talin eru smygla fíkni­efnum Mynd: AFP

Átta manns létust í árásum á þrjú skip sem talin eru tengjast fíkniefna­smygli í austur­hluta Kyrrahafs á mánudag, að sögn Bandaríkja­hers. Árásirnar eru hluti af yfir­standandi aðgerðum sem hafa kostað yfir 90 mannslíf.

„Leynilegar upplýsingar staðfestu að skipin voru á ferð um þekktar fíkniefna­smyglleiðir í austur­hluta Kyrrahafs og tóku þátt í fíkniefna­smygli,“ sagði Suður­herstjórn Banda­ríkjanna í færslu á X og bætti við að „alls átta karlkyns fíkniefna­hryðju­verkamenn hafi verið drepnir í þessum aðgerðum – þrír í fyrsta skipinu, tveir í öðru og þrír í því þriðja.“

Með færslunni fylgir myndbands­upptaka af þremur aðskildum bátum sem fljóta á sjó áður en ráðist er á hvern þeirra.

Frá því í byrjun september hefur Bandaríkjaher, undir stjórn Pete Hegseth, varnarmála­ráðherra, beint spjótum sínum að skipum sem talin eru smygla fíkni­efnum í Karíbahafi og austur­hluta Kyrrahafs. Að minnsta kosti 26 skipum hefur verið sökkt og að minnsta kosti 95 manns hafa …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár