Heilbrigt ástand að vera hamingjusamur

Hrefna Guðmunds­dóttir vinnu­sálfræðingur hjá Vinnumála­stofnun lærði margt um hamingjuna af rann­sóknum og líka af afa sínum, sem sagði að besta ráðið við vanlíðan væri að vera góður við einhvern og taldi göngutúra allra meina bót.

Margt hefur rekið á fjörur Hrefnu Guðmunds­dóttur, vinnu­sálfræðings hjá Vinnumála­stofnun og meðhöfundar bókarinnar Why are Icelanders so happy, þegar hún hefur stúderað hamingjuna, sem lengi hefur verið henni hugleikin.

„Það kom mér á óvart í árdaga rannsókna á sviði hamingju að það væri heilbrigt ástand að vera tiltölu­lega hamingju­samur. Í einni þeirra laut rannsóknar­spurningin að því hversu hamingju­samir einstaklingarnir væru á kvarðanum frá einu prósenti til tíu. Ef við skoðum aðeins kvarðann um það hversu hamingjusöm við erum á bilinu eitt til tíu, þá telst það ekki heilbrigt ástand að vera einungis fimm í hamingju, nema þegar við tökumst á við mjög erfið verkefni líkt og sorg og djúpstæð áföll. Að vera sjö í hamingju er nær því sem manneskjunni er eðlislægt. Það er mikil fegurð í því, ekki satt? Eins þótti mér virkilega ánægjulegt þegar að ég komst að því að hamingjan vex frekar með árunum heldur en hitt, þótt auðvitað sé það einstaklings­bundið. Ef við ætlum að reyna að mæla hamingjuna eins og við mælum sársauka, nota kvarðann frá einum til tíu, ef mesta hugsanlega hamingju­talan sé tíu og sú minnsta hugsanlega einn, þá er einnig deilt um það hvort betra sé að vera með töluna átta eða tíu í hamingju. Hugsanlega er þetta eina prófið í heiminum þar sem átta er kannski betri en tía. Í þessari hugmynd felst að í áttunni býr meiri yfirvegun og sátt, taka því sem að höndum ber og mæta örlögum sínum. Að í tíunni sé mögulega boginn full spenntur og því líkur á að hamingju­ástandið sé tíma­bundið og því minni farsæld til lengdar. Nema að einstaklingurinn  nái að vera mjög oft og til langs tíma í tíu í hamingju sem hlýtur að vera algjör sæla. Það var ekki nema 1% svarenda við spurningunni sem svöruðu á þá leið að þeir skildu ekki spurninguna.“

Gleðin Skálað fyrir líf­inu í íslenskri nátt­úru.

„Þetta er allt að koma“ 

„Þegar ég hugsa um mína eigin hamingju og þau bjargráð sem ég hef lært þá finnst mér ég búa ekki síst að þeim bjarg­ráðum sem afi minn kenndi mér. Hann var fæddur árið 1920 og ein af hans ráðleggingum var þess lútandi að þegar mér liði illa væri besta ráðið að vera góð við einhvern. Einnig sagði hann oft að það væri ekki til það sem ekki rættist úr og að margir kviðu þeim degi sem aldrei kæmi, það tók mig þó einhverja áratugi að skilja þetta. Hann afi minn var einnig á því að það að ganga væri besta lyfið og ég er ekki frá því að þetta sé allt saman rétt hjá honum. Við finnum þetta á eigin skinni að ef við göngum tals­verðan spotta þá fer eitthvað í gang, það er sem hugurinn léttist og maður fær jafnvel nýja sýn og nýjar lausnir. Eins er það með sönginn, við syngjum ekki lengi án þess að brúnin léttist. Ella þurfum við að hætta að syngja vegna harms.

En öllu má nú þó ofgera, allavega fannst ömmu minni það þegar hún var að fara að fæða sitt fyrsta barn og kvaldist af hríðum og afi stakk þá upp á því hvort það væri ekki gráupplagt að rölta hringinn í kringum þorpið. Mér skilst að amma mín hafi lítið hresst við þessa uppástungu. Við afi fórum margar göngur í Fljóts­hlíðinni og í kringum Hvolsvöll og þar voru málin skeggrædd og gat ég trúað honum fyrir hinum ýmsu raunum og gleði­efnum, hann stappaði í mig stálinu og á sama tíma var  ekkert í umhverfinu sem truflaði samveruna.

„Hún var að fara að fæða sitt fyrsta barn og kvaldist af hríðum og afi stakk þá upp á því hvort það væri ekki gráupplagt að rölta hringinn“

Hún amma mín reyndist mér einnig ráðagóð og ráðlagði mér að leggja mig fram við að trúa því ávallt að eitthvað gott gæti gerst.

Við vinkonurnar leystum oft málin hér á árum áður símleiðis eða í göngutúrum. Við ræddum eitt og annað sem við vorum að takast á við hverju sinni sem gátu verið hin ýmsu lífs­verkefni. Samtölin okkar enduðu yfirleitt á því að setningunni „þetta er allt að koma“ var flaggað. Á þeim augna­blikum vorum við farnar að hlæja að hver annarri, þó ekki nema vegna eigin ófarnaðar, ólukku og óheppni. Þessi litla gildis­hlaðna setning var svona áminning til okkar um að þetta væri tíma­bundið ástand þegar upp var staðið og að nú færi þetta allt að koma hjá okkur. Að ástandið gæti nú varla versnað meira úr þessu.“

Með syni sínum Við viljum vera með þeim sem okkur eru kær­astir og mikið er gott að knúsa. Hrefna og sonur hennar Jóhannes.
Með vin­konuHamingja er sannur vin­skapur, segir Hrefna.

Það sem núið kennir okkur 

„Nú á tímum Covid-19 höfum við sum hver haft töluvert meiri tíma en áður til þess að líta inn á við og reyna að bera kennsl á okkar eigin tilfinningar og átta okkur á því í leiðinni hvernig okkur líður og hvert við í raun viljum stefna. Þá er gott að hlusta á okkar innri rödd, sem er innsæið sjálft. Á sama tíma erum við nú að finna sterkt hversu mikið við viljum vera nálægt þeim sem okkur eru kærastir og finnum í leiðinni hversu innihalds­ríkara líf okkar er vegna allra þeirra sem við erum að deila lífinu með. Við söknum og fáum að hlakka til. Hamingjan er nefnilega ekki það að vera laus við sorgir eða áhyggjur, heldur hvernig við tökumst á við þau örlög sem við fáum í fangið.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita hamingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finnist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki hamingjan að vera alltaf einhvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregðast við ef það finnur fyrir óhamingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlutina. Fjall­göngur hjálpuðu Jóhönnu Fríðu í kjölfar sambands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem farar­stjóri í aukavinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Friðriks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um árabil var hún skotspónn bekkjar­félaga sinna og upplifði sig eina þótt hún ætti vinkonur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við tilfinninga­doðann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risastórt og ótrúlega ógnvænlegt skref,“ segir Ingileif sem er nú hamingju­samlega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár