Hulk Hogan rekinn frá WWE fyrir kynþáttaníð

World Wrestling Entertainment, eða WWE, rifti samningi sínum við fjöl­bragðaglímu­kappann og kvikmynda­leikarann Hulk Hogan í dag, eftir að fjöl­miðlar fjölluðu um að hann hefði farið niðrandi orðum um þeldökka í kynlífs­myndbandi. Frétta­miðillinn The Guardian fjallar um málið.

Slúður­blöðin The National Enquirer og Radar Online greindu í dag frá innihaldi umrædds kynlífs­myndbands þar sem Hogan, sem heitir réttu nafni Terry Bollea, heyrist tala af kynþátta­hatri og nota n-orðið svokalla ítrekað.

Fréttirnar í dag komu á sama tíma og Hogan býr sig undir málflutning í máli sem hann höfðaði á slúður­miðilinn Gawker Media, fyrir að birta áður annað kynlífs­myndband af honum og sömu konu, Heather Clem, sem var þá gift vini Hogans, DJ Bubba „The Love Sponge“ Clem.

Hulk Hogan sendi frá sér frétta­tilkynningu í dag, þar sem hann baðst afsökunar á ummælum sínum. „Fyrir átta árum notaði ég gróft og meiðandi orðalag í samtali. Það var óafsakanlegt af mér að hafa notað slíkt orðbragð, það er ekkert sem afsakar það og ég biðst fyrirgefningar á að hafa gert þetta,“ segir Hogan í tilkynningunni.

„Þetta er ekki sá maður sem ég hef að geyma. Ég trúi mjög á að hver manneskja í heiminum sé mikilvæg og ekki skuli mismuna fólki eftir kynþætti, kyni eða skoðunum. Ég hef valdið sjálfum mér vonbrigðum að að ég hafi notað svona orðalag, sem er móðgandi og samræmist ekki mínum eigin skoðunum.“

Allar upplýsingar um Hogan virtust hafa verið fjar­lægðar af vefsíðu WWE seint í gærkvöldi, og allur varningur með nafninu hans sömuleiðis. Talskona WWE staðfesti við fjölmiðla í dag að samningnum við Hogan hefði verið rift, en vildi ekki fara nánar út í ástæður riftunarinnar.

Hogan sendi frá skilaboð á Twitter eftir að fréttist af því að hann væri orðinn atvinnu­laus.


In the storm I release control,God and his Universe will sail me where he wants me to be,one love. HH


— Hulk Hogan (@HulkHogan) July 24, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár