Segir suma þingmenn fela sig á bak við trúnað og lokaðar dyr

Þing­maður Pírata hvetur þing­menn sem hafa orðið vitni af ofbeldi að segja frá því. „Ofbeldi þrífst í þögn þegar ger­endur fá að kom­ast upp með hegðun sína í skjóli þess að aðrir annað hvort þegi eða skilji ekki hvað sé í gangi.“

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, fjall­aði um ofbeldi og leynd­ar­hyggju í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag en hann sagði suma þing­menn fela sig á bak við trúnað og lok­aðar dyr.

„Ofbeldi þrífst í þögn þegar ger­endur fá að kom­ast upp með hegðun sína í skjóli þess að aðrir annað hvort þegi eða skilji ekki hvað sé í gangi.

Nefnd­ar­vinnan hér á þingi er almennt séð bak við luktar dyr og það er bannað að vitna beint í orð manna og fyrir því fyr­ir­komu­lagi eru ágætis rök en á sama tíma er hægt að mis­nota það skjól sem það bann veitir til þess að fela ofbeldi,“ sagði hann.

Björn Leví benti á að það væru þó ekki ein­ungis orð sem tjá ofbeldi – það væru ekki síður athafnir sem gætu birst í duldum hót­unum, ásök­unum eða annarri áreitni. „Með það í huga við ég minna á að það eru Píratar sem hafa helst talað um gagn­sæi í nefndum og opna nefnd­ar­fundi á meðan ýmsir aðrir hafa viljað halda í þann hul­ins­skjöld sem getur falið ofbeldið.

Vin­sam­leg­ast hafi það í huga í fram­hald­inu; þau sem hafa séð eða heyrt – segið eitt­hvað. Á þessum vett­vangi felum við okkur oft á bak við að störfin hérna séu í póli­tískum ágrein­ingi á ein­hvern hátt sem sé bara mjög eðli­legur. Það er á vissan hátt skilj­an­legt. En aftur, það er hægt að nota það sem skálka­skjól fyrir óásætt­an­lega hegðun og áreitni sem við eigum að gera grein­ar­mun á og upp­lýsa,“ sagði hann.

Vald­­níðsla og linn­u­­lausar árásir

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, sagði af sér for­mennsku í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd við upp­haf þing­fundar í gær. Í ræðu sinni vegna þessa sagði hún að til­­raunir minn­i­hlut­ans í nefnd­inni til að sinna því eft­ir­lits­hlut­verki sem hún á að sinna hefðu orðið „meiri­hlut­­anum til­­efni til vald­­níðslu og linn­u­­lausra árása“.

Í ræð­unni sagði hún skýrasta dæmið vera hvernig staðið hefði verið í vegi fyrir því að frum­­kvæð­is­at­hugun færi fram á hæfi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. „Með þessu er meiri­hlut­inn að setja hætt­u­­legt for­­dæmi, veikja eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis með fram­­kvæmd­­ar­­vald­in­u.“

Hún sagði enn fremur að meiri­hlut­inn per­­són­u­­gerði starf nefnd­­ar­innar til að ná mark­miðum sín­­um. „Til þess að rétt­læta þessa aðför sína kýs meiri­hluti nefnd­­ar­innar að draga per­­sónu mína sífellt niður í svaðið og nota mig sem blóra­­böggul.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár