Skoðað hvort fjölmiðlasamsteypa Murdochs verði ákærð vegna símhlerana

Saksókn­arar í Bretlandi hafa nú til skoðunar hvort News International, fjölmiðla­samsteypa Ruberts Murdoch, verður ákærð vegna símhlerana. Lögregla hefur afhent saksóknara­embættinu gögn sem varða News International, sem núna heitir News UK, en rannsókn lögreglunnar hófst árið 2011.

Saksóknara­embættið skoðar hvort hægt sé að dæma samsteypuna til greiðslu bóta vegna málsins. Áður hafa blaðamenn og stjórn­endur blaðsins News of the World verið saksóttir vegna ólöglegra símhlerana, en blaðamenn brutust inn í talhólf fjölmargra einstaklinga og öfluðu sér frétta þannig. Andy Coulson var dæmdur en aðrir, þar á meðal Rebekah Brooks, voru sýknaðir. Talið var að fjölmiðla­samsteypan myndi tilkynna fljótlega um endurkomu Brooks.

Lögreglan staðfesti við Guardian í dag að sönnunar­gögnin í málinu hefðu verið send saksóknara­embættinu þann 23. júlí síðastliðinn. Áður hafði rannsókn verið hætt í Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár