Heiðar Örn ráðinn fréttastjóri Ríkisútvarpsins

Heiðar Örn Sigur­finnsson hefur verið ráðinn frétta­stjóri RÚV úr hópi fjögurra umsækjenda. Hann hefur verið vara­frétta­stjóri undan­farin ár og starfandi frétta­stjóri frá áramótum, eftir að Rakel Þorbergs­dóttir sagði starfi sínu lausu.

Heiðar Örn Sigurfinnsson varafréttastjóri hefur verið ráðinn fréttastjóri RÚV.
Heiðar Örn Sig­ur­finns­son vara­f­rétta­stjóri hefur verið ráð­inn frétta­stjóri RÚV. Mynd: RÚV/Skjáskot

Heiðar Örn Sigurfinnsson, sem verið hefur vara­frétta­stjóri RÚV frá árinu 2017 og starfandi frétta­stjóri frá áramótum, hefur verið ráðinn frétta­stjóri RÚV. Hann var einn fjögurra umsækjenda um stöðuna, sem auglýst var til umsóknar í upphafi árs í kjölfar þess að Rakel Þorbergs­dóttir sagði starfi sínu lausu.

Auk Heiðars sóttu þrír aðrir karlar um starfið, Val­geir Örn Ragn­ars­son frétta­mað­ur, Þór Jóns­son sviðs­stjóri og Þórir Guð­munds­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri frétta­stofu Stövar 2, Vísis og Bylgj­unn­ar.

Heiðar Örn var fyrst ráðinn frétta­maður á frétta­stofu RÚV árið 2005 og var þing­frétta­ritari 2007-2009. Á árunum 2009 til 2018 var hann vakstjóri á frétta­stofunni með daglega stjórnun á frétta­vakt, ritstjórn og skipulagning frétta­vinnslu. Þá var hann um sex ára skeið kosninga­ritstjóri frétta­stofu og fór með skipulag, umsjón og ábyrgð á kosninga­umfjöllun RÚV í aðdrag­anda kosninga. Heiðar Örn hefur frá árinu 2013 lesið fréttir í sjónvarpi. Hann varð vara­frétta­stjóri árið 2017. Í því starfi er meðal annars fólgin ritstjórn og mótun frétta­áherslna fyrir alla miðla í samstarfi við vakt­stjóra frétta­stofunnar auk daglegs reksturs og mönnunar frétta­stofu, áætlana­gerð og stefnu­mótun.

Heiðar Örn er stjórnmála­fræðingur frá Háskóla Íslands og lauk prófi í alþjóða­samskiptum frá University of Nottingham í Bretlandi 2004.

Í tilkynningu frá RÚV segir að hlutverk frétta­stjóra sé að leiða frétta­stofu Ríkis­útvarpsins og bera ábyrgð á frétta­flutningi í sjónvarpi, útvarpi og á vef. „Leitað var að stjórn­anda með yfirgrips­mikla þekkingu af blaða- og frétta­mennsku, góða samskipta- og samstarfs­færni og hæfni til að leiða árangurs­ríka teymis­vinnu auk annarra hæfnis­krafna. Í ráðningar­ferlinu var staðfest að Heiðar Örn uppfyllir afar vel þessar kröfur sem og aðrar kröfur sem gerðar eru til starfsins,“ segir í tilkynningu á vef RÚV um ráðninguna.

Matthías Már nýr dagskrárstjóri Rásar 2

RÚV greinir einnig frá því í tilkynningu í dag að Matthías Már Magnússon hafi verið ráðinn nýr dagskrár­stjóri Rásar 2, en það starf var áður í höndum Baldvins Þórs Bergs­sonar, sem hefur tekið að sér önnur verkefni innan Ríkis­útvarpsins.

Fram kemur í tilkynningu frá RÚV hafi byrjað að vinna við dagskrár­gerð og dagskrár­stjórnun í útvarpi 2002 á XFM og síðar X-inu 977 hjá 365.

„Hann hefur verið dagskrár­gerðarmaður á Rás 2 frá 2008, þar á meðal í Popplandi. Frá 2015 hefur Matthías Már verið tónlistar­stjóri og aðstoðar­dagskrár­stjóri Rásar 2. Í því starfi hefur hann annast ýmislegt sem snýr að rekstri Rásar 2, svo sem skipulagningu dagskrár, þjálfun dagskrár­gerðar­fólks og erlend og innlend samskipti. Auk þess hefur hann sinnt dagskrár­gerð fyrir útvarp og sjónvarp,“ segir í tilkynningu RÚV.

Matthías lauk framhalds­námi í fram­leiðslu útvarps­efnis frá Bournemouth University í Bretlandi árið 2007 og leggur nú stund á MLM-nám í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár