Fjórir fánar eftir í keppninni um nýjasta þjóðfána Nýja-Sjálands

Fjórir fánar standa eftir sem mögulegur nýr fáni Nýja-Sjálands. Þrír þeirra eru með burkna, sem er tákn helstu landsliða landsins í íþróttum auk þess sem hann er að finna á í skjalda­merki, á myntum og í merkjum herdeilda Nýja-Sjálands.

Almenningur í Nýja-Sjálandi mun geta kosið á milli fánanna fjögurra í póst­kosningu síðar á þessu ári. Þar verður einnig boðið upp á þann möguleika að halda í núverandi fána.

40 tillögur upphaflega valdar


Fáni Nýja-Sjálands er 113 ára gam­all nýlendu­fáni. Töluverð óánægja hefur verið með fán­ann meðal lands­manna, enda þykir hann til merkis um liðna tíma. Því ákvað Nýsjá­lenska þingið að efna til sam­keppni um nýjan fána.

Núverandi fáni Nýja-Sjálands.

Núverandi fáni Nýja-Sjálands.
Núver­andi fáni Nýja-Sjálands.

Sérstök fánanefnd nýsjálenska þingsins birti svo þann 10. ágúst 40 tillögur af hönnun nýs fána. Allar tillögurnar nema ein höfðu það sameiginlegt að breski fáninn, Union Jack, var ekki lengur ráðandi tákn. Tákn breska heims­veldisins er horfið en stjörnurnar fjórar virðast enn vinsælar meðal hönnuða. Þær tákna Suður­krossinn, ráðandi stjörnu­merki á himni suður­hvels jarðar.

Tillögurnar 40 voru valdar úr meira en 10.000 tillögum frá almenningi. John Borrows, yfirmaður verk­efnisins, hefur sagt að hugsanlegur nýr fáni þurfi óaðyggjandi að vera frá Nýja Sjálandi, undir­strika þjóðina sem framsækna og samstæða þjóð í tenglsum við náttúruna. Fáninn þurfi einnig að hafa rætur í fortíðinni og vera tákn framtíðar.

Fáninn er of líkur þeim ástralska


John Key, for­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands, hefur lengi þrýst á það að þjóðin velji sér nýjan fána. Hann vill að silfr­aður burkni prýði fán­ann, eins og meiri­hluti þjóð­ar­innar. Í skoð­ana­könn­unum eru Nýsjá­lend­ingar hins vegar alls ekki á því að það þurfi að skipta út fán­anum. Í skoð­anna­könnun sem New Zealand Herald gerði í apríl sögð­ust 70 pró­sent vera á móti fána­breyt­ing­unni.

Fána­breytingin er hins vegar ekki ný hugmynd. Hún hefur verið til umræðu síðan á áttunda áratug síðustu aldar. Helstu rök þeirra sem vilja breyta um fána eru að flaggið sé einflaldega of líkt ástralska fánanum. Nýsjálenskir ráðamenn hafa, til dæmis, oft þurft að sitja undir þjófána Ástralíu í opinberum heim­sóknum til annarra landa.

Þá þykir það grafa undan sjálf­stæði þjóðarinnar að breski fáninn skuli enn prýða þjóðfána Nýja Sjálands. Það var venjan að nýlendur bresku krúnunnar bæru sambands­fána Bretlands. Núgildandi þjóðfáni Nýja Sjálands er til dæmis síðan 1902 en þjóðin hlaut sjálf­stæði í desember 1947.

Svo er það skortur á táknum frum­byggja Nýja Sjálands í fánanum. Ensk arfleið þjóðarinnar er öllu yfir­sterkari í þjóð­fánanum en engu púðri eytt í aðrar þjóðir landsins. Hugmyndir um að bæta við táknum Māori-þjóðarinnar í fánann voru fyrst settar fram í seinni heim­styrjöldinni. Nýja Sjáland er fjöl­þjóðlegt samfélag og helsta tákn landsins ætti að viðurkenna það. Í manntali árið 1961 var sýnt fram á að 92 prósent þjóðarinnar hefðu evrópska arfleifð. Árið 2013 var hlut­fallið orðið 74 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár