Auglýsa sænskan kavíar með því að sýna hvað öðrum finnst hann vondur á bragðið

„Einstakt, sænskt bragð,“ segir í auglýsingum frá fyrir­tækinu Orkla sem fram­leiðir hinn sænska Kalles kavíar. Í auglýsingunum eru sýnd myndskeið af fólki sem fær að smakka kavíarinn og finnst hann vondur á bragðið. „Gaur, þú ættir ekki að gefa fólki þetta að borða,“ segir Bandaríkja­maður einn sem fær brauðbita með kavíar að smakka.

Áferð kavíarsins er ekki allra. Hann er fram­leiddur úr þorskshroknum, lítur út eins og blátt tannkrem þegar hann er kreistur út túbunni og kavíarnum ætti ekki að rugla saman við rússneskan gæða­kavíar, segir í umfjöllun New York Times um frumlega auglýsinga­herferð kavíars­fram­leiðandans. Fram kemur að árlega seljast um 3,300 tonn af Kalles-kavíar í Svíþjóð. Oftast ratar kavíarinn ofan á sneiðar af soðnum eggjum.

Auglýsingar Kalles hafa verið til sýningar í Svíþjóð í rúmt ár en þær eru meðal annars teknar upp í Kaliforníu, Sviss og Japan. „Við vildum sýna skilnings­leysi annarra þjóða þegar kemur að mjög sænsku bragði eins og Kalles. Við vildum sýna Svíum að þeir eru einstakir og eiga að vera stoltir af vöru­merkinu og bragðinu,“ segir markaðs­stjóri Kalles í lauslegri þýðingu.

Hér að neðan má horfa á auglýsingarnar. Síðasta auglýsingin, og jafnframt sú nýjasta, er tekin upp í New York borg og er að nokkru leyti frábrugðin hinum fyrri.




Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár