Hjá þeim sem eru áfram í Sýrlandi þá er daglegt líf „martröð“

Fyrir þá sem eru áfram í Sýrlandi, en freista þess ekki að hefja nýtt líf með því flýja stríðs­hrjáð svæði í landinu, er daglegt líf best lýst með orðinu „martröð“. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun New York Times í dag, en blaða­mennirnir Maher Saaman og Anne Barnard hafa dvalið í landinu að undan­förnu og fylgt flótta­mönnum eftir þegar þeir leggja land undir fót og freista þess að hefja nýtt líf í Evrópu, eftir mörg þúsund kílómetra ferðalag.

Staða mála í Sýrlandi hefur versnað hratt á undan­förnum mánuðum og er talið að 9,5 milljónir manna, af ríflega 22 milljóna heildar­íbúafjölda, sé á flótta vegna stríðs­átaka. Tæplega fimm milljónir reyna nú að komast áfram til annarra landa, ekki síst í Evrópu, á meðan aðrir eru á flótta innan Sýrlands. Matar- og vatns­skortur er viðvarandi og aðstæður allar hinar ömurlegustu, hjá milljónum manna. Í umfjölluninni kemur enn fremur fram, að litla aðstoð sé að fá á stórum svæðum, og óttinn við byssu­kúlur og ofbeldi öfgamanna er „í loftinu“.

Margir óbreyttir borgarar hafa dáið í Sýrlandi eftir ógnvekjandi og miskunnar­laust ofbeldi. Samkvæmt umfjöllun New York Times eru 8.871 dauðsföll skýrð með því að viðkomandi hafi látið lífið eftir mannrán eða pyntingar. Þetta hafi gerst nánast handahófs­kennt gagnvart borgurum sem hafi kynnt undir mikinn ótta og gert það að verkum að margir sjái ekkert annað í stöðunni en að flýja land.


How #Syrians Are Dying - The New York Times http://t.co/TOTcMr7HaL


— Yuka Tachibana (@ytachibana) September 15, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár