Engin lagaleg skilgreining til á orðinu kona

Samkvæmt svari frá for­sæt­is­ráð­herra þarf menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra sem „fer með mál­efni íslensk­unnar“ að svara því hverjar orð­sifjar nafn­orðs­ins kona séu og hver mál­fræði­leg merk­ing orðs­ins sé.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svar hefur borist frá Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­manns Mið­flokks­ins en hann spurði á loka­dögum þings­ins í júní: „Hvernig skil­greinir ráðu­neytið orðið kona?“

Í svari ráð­herr­ans kemur fram að óski Sig­mundur Davíð eftir upp­lýs­ingum um orð­sifjar nafn­orðs­ins kona og mál­fræði­lega merk­ingu þess beri að beina fyr­ir­spurn þess efnis að menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra sem fer með mál­efni íslensk­unnar.

Þá segir jafn­framt í svar­inu að sam­kvæmt for­seta­úr­skurði um skipt­ingu stjórn­ar­mál­efna milli ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands fari for­sæt­is­ráðu­neytið með jafn­rétt­is­mál, þar á meðal lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynj­anna og lög um kyn­rænt sjálf­ræði.

Markmið laganna að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns

Þá er bent á í svar­inu að lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynj­anna hafi tekið gildi 6. jan­úar árið 2021. „Orðið kona er ekki skil­greint í lög­unum og engin laga­leg skil­grein­ing er til á því orði. Markmið lag­anna er að koma í veg fyrir mis­munun á grund­velli kyns og koma á og við­halda jafn­rétti og jöfnum tæki­færum kynj­anna á öllum sviðum sam­fé­lags­ins.“

Enn fremur segir í svari for­sæt­is­ráð­herra að í athuga­semdum við fyrr­nefnd lög komi fram að með kyni í lög­unum sé átt við konur, karla og fólk með hlut­lausa skrán­ingu kyns en í lögum um kyn­rænt sjálf­ræði sé kveðið á um óskor­aðan rétt ein­stak­linga til að skil­greina kyn sitt sem kona, karl eða kyn­hlut­laus. Miði lög um kyn­rænt sjálf­ræði að því að tryggja að kyn­vit­und ein­stak­linga njóti við­ur­kenn­ingar. Í þeim til­vikum sem rétt­ar­á­hrif fylgja kyni ein­stak­linga gildi hin opin­bera skrán­ing kyns í þjóð­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár