„Hvernig skilgreinir ráðuneytið orðið kona?“ spyr Sigmundur Davíð

Þingmenn Mið­flokks­ins sendu ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar alls 19 fyr­ir­spurnir á síð­ustu klukku­stundum þing­vetr­ar­ins sem lauk í nótt. Sig­mundur Davið Gunn­laugs­son var öllu stór­tæk­ari en Bergþór Ólason en Sig­mundur Davíð sendi frá sér 16 fyr­ir­spurnir.

Fyrirspurnum frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni rigndi yfir ráðherra ríkisstjórnarinnar nú undir lok þingvetrar.
Fyr­ir­spurnum frá Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni rigndi yfir ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar nú undir lok þing­vetrar. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður og for­maður Mið­flokks­ins, nýtti tæki­færið fyrir þing­frestun og sendi alls 16 fyr­ir­spurnir til ýmissa ráð­herra á síð­ustu klukkust­unum þing­vetr­ar­ins sem lauk í nótt. Hinn þing­maður Mið­flokks­ins, Bergþór Ólason var ekki jafn stór­tækur og Sig­mundur en Bergþór sendi engu að síður inn þrjár fyr­ir­spurnir.

Sig­mundur var skýr og skor­in­orður í flestum af þeim fyr­ir­spurnum sem hann hefur sent ráð­herrum. Í fyr­ir­spurn Sig­mundar til for­sæt­is­ráð­herra um skil­grein­ingu spurði hann ein­fald­lega: „Hvernig skil­greinir ráðu­neytið orðið kona?“ Foræsi­ráð­herra fékk tvær fyr­ir­spurnir til við­bótar frá Sigmundi um starfs­manna­mál í ráðu­neyt­inu. Í annarri þeirra spurði hann um hver starfs­manna­fjöldi í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu hefði verið í árs­lok árin 2009 til 2021 og hversu margir starfs­menn­irnir væru nú. Hin spurn­ingin sneri að ráðn­ingum en Sig­mundur spurði hversu margir hefðu verið ráðnir til aðstoðar við ráð­herra, ráðu­neyti eða rík­is­stjórn­ina í heild án aug­lýs­inga árin 2016 til 2022. [adspot]

Flestar fyr­ir­spurnir Sig­mundar röt­uðu til umhverfis-, auð­linda- og lofts­lags­ráð­herra ann­ars vegar og til mat­væla­ráð­herra hins vegar, fjórar á hvorn ráð­herra. Þar að auki rataði ítar­leg­asta fyr­ir­spurnin til mat­væla­ráð­herra en sú fyr­ir­spurn snýr að mak­ríl­veiðum. Önnur fyr­ir­spurn Sig­mundar til mat­væla­ráð­herra sem teng­ist fisk­veiðum snýr að fjölda útgerð­ar­fé­laga sem leyst hafa verið upp, seld eða sam­ein­uðu öðrum félögum und­an­far­inn ára­tug. Þá spurði hann ráð­herra um hversu margar jarðir í land­inu væru í eigu erlendra lög­að­ila og hversu margir bændur eru eða hafa verið starf­andi á Íslandi á árunum 2017 til 2022.

Hvernig er hamfarahlýnun skilgreind?

Sig­mundur kom víða við í fyr­ir­spurnum sínum. Hann beindi sjónum sínum til dæmis að neyslu­skömmtum, frið­uðum húsum sem hafa verið rifin eða fjar­lægð og árangri grunn­skóla­nem­enda í lestri. Sig­mundur vildi einnig fá að vita hversu mikið lagn­ing borg­ar­línu myndi kosta ríkið, hvernig bið­tími eftir heil­brigð­is­þjón­ustu hefði þró­ast á und­an­förnum árum og hvaða við­ur­lögum yrði beitt ef lög­bundin skylda um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verði ekki upp­fyllt.

Lofts­lags­málin voru Bergþóri Ólasyni, sam­flokks­manni Sig­mundar, einnig hug­leikin. „Er til skil­grein­ing á hug­tak­inu ham­fara­hlýnun? Ef hún er til, hver er hún?“ spurði hann umhverfis-, auð­linda- og lofts­lags­ráð­herra. Bergþór beindi fyr­ir­spurn til inn­við­a­ráð­herra um end­ur­menntun til öku­rétt­inda og hann spurði heil­brigð­is­ráð­herra út í nýjan Land­spít­ala.

Gæti komið til framhaldsfunda vegna Íslandsbankasölunnar

Síðasta þing­fundi þing­vetr­ar­ins lauk á öðrum tím­anum í nótt, aðfara­nótt fimmtu­dags. Þá höfðu þing­menn fundað sleitu­laust frá því klukkan 11 fyrir hádegi á mið­viku­dag. Dag­skráin var þétt og tóku mörg mál ein­hverjum breyt­ingum á loka­sprett­inum.

Fundum Alþingis hefur nú verið frestað til 13. sept­em­ber. Þó má gera ráð fyrir að Alþingi verði kallað saman til fram­halds­funda þegar þing­inu berst skýrsla rík­is­end­ur­skoð­anda um sölu á hluta­bréfum rík­is­ins í Íslands­banka, líkt og Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis, benti á undir lok þing­fund­ar­ins.

Birgir þakk­aði þing­mönnum fyrir sam­starfið í ræðu sinni. „Eðlilega greinir þing­menn á um ýmis mál en hér á Alþingi hefur almennt ríkt góður andi og ríkur sam­starfsvilji og vil ég þakka fyrir það. Sér­stak­lega vil ég láta í ljós ánægju mína með það ítar­lega sam­komu­lag sem þing­flokkar gerðu undir lok þing­halds­ins og fram­gang mála á síð­ustu dögum. Það er ósk­andi að okkur megi auðn­ast að vinna í þeim anda á kom­andi þingi,“ sagði þing­for­set­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár