Sigmundur Davíð, Gunnar Bragi, Bergþór og Anna Kolbrún biðjast afsökunar

Þeir fjórir þing­menn Mið­flokks­ins sem teknir voru upp við að tala með nið­ur­lægj­andi og meið­andi hætti um nafn­greint fólk, meðal ann­ars þing­menn, í síð­ustu viku hafa beðist afsök­unar.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir, sem öll eru þing­menn Mið­flokks­ins, hafa sent frá sér yfir­lýs­ing­unni þar sem þeir biðja þá sem þeir fóru ónær­gætnum orðum um í síð­ustu viku afsök­unar. Þá biðja þeir einnig fjöl­skyldur sínar afsök­unar á fram­ferði sínu.

Ummælin, sem eru fjöl­mörg og snerta stóra hóp ein­stak­linga, féllu þegar hóp­ur­inn sat við drykkju ásamt tveimur þing­mönnum Flokks fólks­ins á þriðju­dag í síð­ustu viku.

Yfir­lýs­ing­una má lesa í heild sinni hér að neðan:

Við fjórir þing­menn Mið­flokks­ins sem sátum á hót­el­barnum Klaustri í lið­inni viku viljum biðja þá sem farið var ónær­gætnum orðum um í þeim einka­sam­tölum sem þar fóru fram ein­læg­legrar afsök­unar. Það var ekki ætlun okkar að meiða neinn og ljóst má vera að sá talsmáti sem þarna var á köflum við­hafður er óaf­sak­an­legur. Við ein­setjum okkur að læra af þessu og munum leit­ast við að sýna kurt­eisi og virð­ingu fyrir sam­ferð­ar­fólki okkar. Jafn­framt biðjum við flokks­menn Mið­flokks­ins og fjöl­skyldur okkar afsök­unar á að hafa gengið fram með þessum hætti.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son

Gunnar Bragi Sveins­son

Bergþór Ólason

Anna Kolbrún Árna­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár