Nöfn þeirra sem létust í flugslysinu

Fólkið sem lést voru hjón ásamt syni sínum. Annar sonur hjónanna og tengda­dóttir liggja þungt haldin á sjúkra­húsi.

Þrír létust og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlu landhelgis­gæslunnar á sjúkrahús eftir að einka­flugvél skall til jarðar við Múlakot í Fljóts­hlíð um 20:30 síðastliðið sunnudags­kvöld. Tilkynning barst um flugslys við flugvöll laust upp úr 20:30 umrætt kvöld og viðbragðsteymi Rauða kross Íslands kallað út til að veita vitnum að atvikinu sálrænan stuðning. Eldur varð laus í flug­vélinni og fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkra­flutninga­manna fóru á staðinn. Rannsókn á tildrögum slyssins er nú í gangi hjá lögreglu.

Þau sem létust voru hjónin Ægir Ib Wessman, fyrrum yfir­flugstjóri hjá WOW air, fæddur árið 1963 og Ellen Dahl Wessman sjúkra­þjálfari, fædd árið 1964. Sömuleiðis lést sonur þeirra Jón Emil Wessmann fæddur árið 1998 og því aðeins tuttugu og eins árs gamall. Öll voru þau úrskurðuð látin á vettvangi.

Annar sonur hjónanna og tengda­dóttir liggja nú þungt haldin á Land­spítalanum en líðan þeirra er sögð stöðug samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár