Sainsbury’s kaupir ekki lengur fisk af Samherja – M&S að fylgist með þróun mála

Samherji hefur selt fros­inn fisk til tveggja stórra versl­un­ar­keðja í Bret­landi. Önnur þeirra er hætt að kaupa af íslenska sjáv­ar­út­vegs­ris­anum, en það teng­ist ekki mútu­mál­inu í Namibíu. Hin er að fylgj­ast með þróun mála.

Sainsbury´s er ein stærsta matvörukeðja Bretlands.
Sains­bury´s er ein stærsta mat­vöru­keðja Bret­lands. Mynd: Wikicommons

Breska versl­un­ar­keðjan J. Sains­bury kaupir ekki lengur fros­inn fisk af dótt­ur­fé­lagi Samherja í Bret­landi. Ákvörðun um að slíta því við­skipta­sam­bandi var þó tekin áður en að Kveikur og Stundin opin­ber­uðu meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Samherja í tengslum við veiðar fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu.

Frá þessu er greint á frétta­síð­unni Undercurrent News sem sér­hæfir sig í fréttum af sjáv­ar­út­vegs­málum. Þar kemur enn fremur að Marks and Spencer (M&S), hinn stóra versl­un­ar­keðjan sem hefur keypt fisk af starf­semi Ice Fresh Seafood, dótt­ur­fé­lags Samherja, í Grimsby, fylgist mjög vel með þróun mála í mútu­mál­inu, þar sem Samherja er ætlað að hafa greitt að minnsta kosti 1,4 millj­arða króna fyrir aðgengi að ódýrum kvóta í Namibíu. Ice Fresh Seafood keypti stærri verk­smiðju í Grimsby árið 2017 til að sinna auk­inni eft­ir­spurn frá Sains­bury´s og M&S.

Í frétt Undercurrent News segir að verk­smiðjan sé nú í vand­ræðum með verk­efni eftir að tveir kín­verskir fram­leið­endur, Qingdao Tanford Foods og Unibond Seafood International, tóku yfir sölu á frosnum fiski til Sains­bury´s.

Sam­herj­a­málið hefur þegar haft marg­hátt­aðar afleið­ingar. Tveir ráð­herrar í Namibíu hafa sagt af sér emb­ætti og annar þeirra var nýverið hand­tek­inn, þótt honum hafi, að minnsta kosti tíma­bundið, verið sleppt aftur. Hinn ráð­herr­ann og tveir ætl­aðir sam­verka­menn þeirra eru eft­ir­lýstir í Namibíu. Þá hefur Þor­steinn Már Bald­vins­son, einn aðal­eig­enda Samherja, stigið til hliðar sem for­stjóri félags­ins og hætt í stjórnum að minnsta kosti þriggja sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem Samherji á hlut í.

Undercurrent News hefur það eftir ónefndur sér­fræð­ingi í sjáv­ar­út­vegi að ákvörðun Sains­bury´s um að hætta við­skiptum við Samherja teng­ist ekki mútu­mál­inu, heldur hafi hún átt lengri aðdrag­anda. Samherji vildi ekki svara spurn­ingum mið­ils­ins um málið.

Í frétt hans er rætt við tals­mann M&S-keðj­unnar, sem segir að þar sé vel fylgst með því hvernig Sam­herj­a­málið þró­ist. Fyrir liggi að M&S kaupi ekki fisk sem veiddur hafi verið í namibíska-hluta starf­semi Samherja. „Við erum mjög skýr með að við krefj­umst þess að allir okkar birgjar hagi við­skiptum sínum á sið­legan og lög­legan hátt og við tökum þessar ásak­anir mjög alvar­lega,“ sagði tals­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár