Rammi sameinaður Ísfélaginu og til stendur að skrá nýju risaútgerðina á hlutabréfamarkað

Sam­þjöppun í íslenskum sjáv­ar­út­vegi heldur áfram. Sameinað Ísfélag verður á meðal fjög­urra til fimm stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækja á land­inu og til stendur að skrá það á markað. Guðbjörg Matth­í­as­dóttir og fjöl­skylda verða langstærstu eig­end­urnir.

Guðbjörg Matthíasdóttir er stærsti eigandi Ísfélags Vestmannaeyja og verður stærsti eigandi sameinaðs fyrirtækis.
Guðbjörg Matth­í­as­dóttir er stærsti eig­andi Ísfélags Vest­manna­eyja og verður stærsti eig­andi sam­ein­aðs fyr­ir­tækis. Mynd: Bára Huld Beck

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin Ísfé­lagið í Vest­manna­eyjum og Rammi, sem er með höf­uð­stöðvar sínar í Fjalla­byggð en landar einnig í Þor­láks­höfn, hafa til­kynnt um sam­ein­ingu. Nýja félagið mun heita Ísfé­lagið hf. Stefán Frið­riks­son, núver­andi fram­kvæmda­stjóri Ísfélags Vest­manna­eyja hf., mun stýra því með aðsetur í Vest­manna­eyjum og Ólafur H. Mart­eins­son, núver­andi fram­kvæmda­stjóri Ramma hf., verður aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri með aðsetur í Fjalla­byggð.

Samkvæmt til­kynn­ingu var sam­eig­in­leg velta fyr­ir­tækj­anna tveggja um 28 millj­arðar króna í fyrra og búist sé við að heild­ar­afla­hlut­deild sam­ein­aðs félags verði tæp­lega átta pró­sent af úthlut­uðu afla­marki. Í Morg­un­blað­inu í dag er svo haft eftir Einari Sig­urðs­syni, stjórn­ar­manni í Ísfé­lag­inu, að til standi að skrá sam­einað félag á markað. Félagið

Fjöl­skylda Einars er langstærsti eig­andi Ísfé­lags­ins og verður stærsti eig­andi sam­ein­aðs félags í gegnum ÍV fjár­fest­ingar ehf. með um tvo þriðju hluta­fjár. Hún er líka stærsti eig­andi Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins. Auk þess á fjöl­skyldan, sem leidd er af Guðbjörg Matth­í­as­dóttur móður Einars, meðal ann­ars hluti í ýmsum skráðum félög­um, allt hlutafé í ÍSAM, einu stærstu inn­­­­­flutn­ings- og fram­­­leiðslu­­­fyr­ir­tækis lands­ins og fjöl­margar fast­eign­ir.

Nýjar tölur um samþjöppun kvóta liggja ekki fyrir

Fiski­stofa hefur ekki birt upp­færðar tölur um kvóta­stöðu stærstu útgerða lands­ins. Samkvæmt lista hennar sem birtur var í byrjun nóv­em­ber í fyrra héldur tíu stærstu útgerðir lands­ins á 67 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Bæði Ísfé­lagið og Rammi voru á þeim lista, en saman héldu útgerð­irnar á 12,91 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Að óbreyttu hefði það þýtt að sam­einað fyr­ir­tæki héldi á yfir tólf pró­sent af kvóta, en sam­kvæmt lögum má hópur tengdra aðila ekki halda á meira sem þeim mörkum nemur. Þau mörk eiga að koma í veg fyrir of mikla sam­­þjöppun í sjá­v­­­ar­út­­­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tæki sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna, sem eru sam­­kvæmt lögum þó ekki eign þeirra heldur þjóð­­ar­inn­­ar.

Þær kvóta­tölur lit­ast þó mjög á risa­stórum loðnu­kvóta sem úthlutað var í fyrra, alls 904 þús­und tonnum. Þá hafði engum kvóta í loðnu verið úthlutað í tvö ár og úthlut­unin í fyrra var sú stærsta í tvo ára­tugi. Hún reynd­ist á end­anum allt of umfangs­mikil, var skert og íslensku útgerð­irnar veiddu 76 pró­sent af því sem þeim var úthlutað.

Þrjú fyr­ir­tæki fengu 56,5 pró­­sent af þeim loðn­u­kvóta sem var úthlut­að. Ísfé­lag Vest­­manna­eyja fékk mest, 19,99 pró­­sent. Síld­­ar­vinnslan og tengd félög komu þar á eftir með 18,5 pró­­sent og Brim var í þriðja sæti með um 18 pró­­sent.

Ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar vegna yfir­stand­andi loðnu­ver­tíðar nem­ur 218.400 tonn­um en tæp­lega 80 þús­und tonn­um af þessu renn­a til norskra, fær­eyskra og græn­lenskra skipa. Í hlut íslenskra útgerða féllu því tæp­lega 132 þús­und tonn í stað þeirra 686 þús­und tonna í fyrra sem íslenskar útgerðir máttu veiða í fyrra eftir skerð­ingar.

Þessi skerta loðnu­veiði útskýrir því af hverju hlut­fall Ísfé­lags­ins í heild­ar­kvóta lækkar skarpt milli ára, en útgerðin stundar fyrst og síð­ast upp­sjáv­ar­veiðar á meðan að Rammi sér­hæfir sig í bol­fisksvinnslu.

Mikil samþjöppun í ár

Ef af skrán­ing­ar­á­formum verður mun Ísfé­lagið verða þriðja útgerð­ar­fyr­ir­tækið sem skráð verður á markað. Fyrir eru Brim og Síld­ar­vinnslan, sem hafa bæði verið í ytri stækkun á árinu sem er að líða. Brim keypti kvóta og tog­ara af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur, fyr­ir­tækis í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar for­stjóra og stærsta eig­anda Brims, í nóv­em­ber á 12,4 millj­arða króna.

Síld­ar­vinnslan keypti útgerð­ar­fyr­ir­tækið Vísi í Grinda­vík af sex systk­inum á upp­hæð sem átti að vera 31 millj­arður króna þegar greint var frá við­skipt­unum í sumar. Kaup­verðið skipt­ist í yfir­töku skulda upp á ell­efu millj­arða króna, sex millj­arða króna greiðslu í reiðufé og 14 millj­arða króna sem greið­ast með hluta­bréf­um. Sam­keppn­is­eft­ir­litið þurfti að sam­þykkja söl­una áður en hún yrði frá­gengin og því gerð­ist það ekki fyrr en 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Frá því að greint var frá áformunum hækk­uðu hluta­bréf í Síld­ar­vinnsl­unni umtals­vert í verði, og verð­mið­inn sömu­leiðis hækk­að, alls um 23 pró­sent. Virði þeirra hluta­bréfa sem syst­k­ina­hóp­­­ur­inn sem seldi Vísi fékk sem afgjald fyrir fyr­ir­tækið jókst um 3,2 millj­­­arða króna frá til­kynn­ingu um við­skiptin, upp í 17,2 millj­­­arða króna.

Þetta voru önnur risa­við­skipti Síld­ar­vinnsl­unnar á skömmum tíma. Í vor var til­kynnt um kaup á 34,2 pró­sent hlut í norska lax­eld­is­fé­lag­inu Arctic Fish Holding AS fyrir um 13,7 millj­arða króna. Það félag á allt hlutafé í Arctic Fish ehf. sem er eitt af stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi og rekur eld­is­stöðvar á Vest­fjörðum þar sem félagið er með rúm­lega 27 þús­und tonna leyfi fyrir eldi í sjó.

Síld­ar­vinnslan velti um 30 millj­örðum króna í fyrra. Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins um síð­ustu ára­mót var um 186 millj­arðar króna. Miðað við þá stöðu má ætla að virði hins sam­ein­aða Ísfélags, þrátt fyrir skertan loðnu­kvóta, fari auð­veld­lega yfir eitt hund­rað millj­arða króna. Eigendur þess munu því geta inn­leyst mik­inn hagnað þegar þeir selja hluti sína í sam­ein­uðu Ísfélagi í aðdrag­anda skrán­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár