107 látnir í Mekka eftir að byggingarkrani féll á Mosku

Yf­ir­völd í Sádi-Ar­ab­íu gáfu það út í gær, um klukkan tíu í gærkvöldi, að 107 hafi lát­ist eft­ir að gríðar­stór bygg­ing­ar­krani féll á Mosk­una miklu í miklu hvassviðri í Mekka í gær, og að 238, hið minnsta, hafi slasast.

Kraninn féll á moskuna um klukkan fimm seinni­partinn í gær, og var hún þá full af fólki.

Mekka býr sig um þessar mundir und­ir píla­gríms­hátíð mús­líma og er von á mörg hundruð þúsund píla­grím­um til borg­ar­inn­ar, líkt og oft er í kringum hátíðina.

Fram kem­ur á veg breska ríkis­útvarpsins BBC, að kran­inn hafi fallið á aust­ur­hlið mosk­unn­ar í miklu hvassviðri, með fyrr­nefndum afleiðingum.

Stjórn­völd í Sádi-Arabíu hafa gefið það út að slysið verði rannsakað til hlítar til að komast til botns í því, hvað það var nákvæmlega sem gerðist.

Átakanlegar myndir af vettvangi mátti sjá á samfélags­miðlum, skömmu eftir slysið.


Crane just fell in masjid Alharam, Mekkah! May Allah safe guard all the pilgrims. Ameen. pic.twitter.com/Ps3aIO1Fxy


— مُحَمَّد (@itsnotmoh) September 11, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár