Osborne segir Jeremy Corbyn vera ógn við þjóðaröryggi Bretlands

Verkamanna­flokkurinn undir stjórn Jeremy Corbyn væri ógn við þjóðar­öryggi Bretlands, að mati George Osborne, fjármála­ráðherra Bretlands. Ástæðan er sú að Corbyn er mótfallinn því að endurnýja Trident, kjarnorku­áætlun Breta.

Osborne skrifar í the Sun í dag og segir að vanheilagt bandalag vinstri­sinnaðra uppreisnar­seggja í Verkamanna­flokknum og skoskra þjóðernis­sinna myndi gera út um áratuga­samstöðu um að Bretar eigi kjarnorku­vopn. Það yrði hörmulegt að hans mati.

Skoski þjóðar­flokkurinn er líka mótfallinn Trident, en kjarnorku­vopnin sem Bretar eiga eru geymd í Skotlandi. Flokkurinn er með 56 af 59 þingsætum í Skotlandi, en þingmenn í Westminster þurfa að taka ákvörðun um framhald Trident á næsta ári. Skoski þjóðar­flokkurinn hefur skuld­bundið sig til að við halda hefð­bundnum sjóher þar sem kjarnorku­miðstöðin er nú.

Corbyn er vinsælastur af þeim sem bjóða sig fram til formanns Verkamanna­flokksins og mikið hefur verið rætt um að Íhalds­flokkurinn myndi gleðjast ef hann nær kjöri. En Osborne sagði að það ætti ekki að grínast með formanns­kjörið. „Þvert á móti held ég að við ættum að taka það mjög alvarlega.“

Osborne sagði einnig að ógnin af þessu væri ekki aðeins ógn við þjóðar­öryggi heldur líka við efnahags­öryggi. „Við munum takast á við hættuleg rök þeirra og sigra þá,“ skrifar ráðherrann.

„Í heimi sem verður sífellt hættulegri yrði það hörmulegt fyrir Bretland að kasta á glæ grundvallar­öryggis­stefnunni sem heldur okkur frjálsum og öruggum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár