Svandís: Búið að ákveða að ekkert komi út úr starfi veiðigjaldanefndar

Fulltrúi Vinstri grænna í nefnd um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi segir starf­semi nefnd­ar­innar vera sjón­ar­spil. Vinna hennar snú­ist um að tryggja að sökin á breyt­ing­ar­leysi liggi ann­ars staðar en hjá rík­is­stjórn­inni.

Svandís Svav­ars­dóttir, full­trúi Vinstri grænna í nefnd um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi, segir að svo virð­ist sem starf­semi nefnd­ar­innar sé sjón­ar­spil. Fyrir fram sé búið að ákveða að ekk­ert komi út úr henni. Vinnan snú­ist í raun „um að tryggja að sökin liggi ann­ars staðar en hjá rík­is­stjórn­ar­flokk­unum sjálfum sem ekki hafa leitt þessi mál til lykta með nokkru móti frekar en önnur stór mál á borði rík­is­stjórn­ar­inn­ar.“ Þetta kemur fram í aðsendri grein sem Svandís skrifar á Kjarnann í dag.

Svandís segir að Hanna Katrín Frið­riks­son, full­trúi Við­reisnar í nefnd­inni, hafi lagt fram til­lögu í nefnd­inni þar sem ekk­ert hafi verið fjallað um þjóð­ar­eign á fisk­veiði­auð­lind­inni heldur byggt á þeirri nálgun að um verði að ræða samn­inga milli útgerð­ar­innar og rík­is­ins á einka­rétt­ar­legum grunni. Sjálf seg­ist Svandís telja að ekki verði undan því vik­ist í vinn­unni að skera úr um skiln­ing á eign­ar­hald­inu og að festa þurfi auð­linda­á­kvæði í sessi í stjórn­ar­skrá.

Nefndin á að skila til­­lögum sínum til ráð­herra í formi laga­frum­varps eigi síðar en 1. des­em­ber á þessu ári.

Bókuðu harða gagnrýni á Þorstein

Þor­steinn Pálsson, for­maður nefnd­ar­innar og áhrifa­maður innan Við­reisnar, skrif­aði grein í júní sem birt var á Kjarn­anum. Þar sagði Þor­steinn m.a. að mesta hættan sem sé til staðar í rík­­is­­stjórn­­­ar­­sam­­starfi Við­reisnar og Bjartrar fram­­tíðar við Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn sé að sá síð­­ast­­nefndi nái saman með Fram­­sókn­­ar­­flokknum og Vinstri grænum í því breiða sam­tali um nokkur höf­uð­­mál íslenskra stjórn­­­mála sem fram undan sé. Bæði Fram­­sókn og Vinstri græn hafi „staðið jafn fast eða jafn­­vel fastar gegn kerf­is­breyt­ingum en Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn“. Flokk­­arnir kom­ist ekki hjá því að svara hvert hugur þeirra stefnir í þeim efnum á næstu mán­uðum eða mis­s­er­­um.

Grein­ar­skrif Þor­steins urðu til þess að Svandís, Páll Jóhann Páls­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, og Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, bók­uðu harða gagn­rýni á Þor­stein á næsta fundi nefnd­ar­innar. Í bók­un­inni var vitnað í grein Þor­steins og þar var tekið fram að vand­séð sé að for­maður nefnd­ar­innar sé að vinna að því marki að ná víð­tækri sátt um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi, sé miðað við umrædd skrif.

Segir nefndina ekki eiga að skila neinu

Svandís fjallar um grein Þor­steins í skrifum sínum í dag og sagði það vera nýlundu að „meiri­hlut­inn kenni minni­hlut­anum um það þegar meiri­hlut­inn getur ekki komið sér saman um stór mál. Ekki varð hjá því kom­ist að svara þess­ari grein Þor­steins enda var engu lík­ara en að for­mað­ur­inn væri að reyna að koma sök­inni fyrir fram á aðra flokka á því sem fyr­ir­sjá­an­legt væri, eða því að starf nefnd­ar­innar myndi engu skila.“

Hún nefnir svo tvö dæmi sem hún telur að styðji við þá skoðun sína að starf nefnd­ar­innar eigi ekki að skila neinu, og sé því sjón­ar­spil. Annað er við­tal við Daða Má Krist­ó­fers­son, for­seta Félags­vís­inda­stofn­unar og stjórn­ar­mann í Viðreisn, í Fiski­fréttum í síð­ustu viku. Daði er ráð­gjafi nefnd­ar­innar, pró­fessor og auð­linda­hag­fræð­ingur. Í við­tal­inu sagði hann meðal ann­ars að sér finn­ist hug­myndir manna „um umfang rentu í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi oft vera skringi­lega bjart­sýn­ar.“ Veiði­gjöld verði aldrei neinn meiri­háttar tekju­stofn fyrir rík­is­sjóð og muni aldrei leysa af hólmi tekju­skatta. Menn hafi því að ein­hverju leyti séð „tölu­verðum ofsjónum yfir hagn­aði í sjáv­ar­út­veg­i.“

Svandís vitnar líka í við­tal við Harald Bene­dikts­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­mann fjár­laga­nefndar, í lið­inni viku. Þar sagði Haraldur að lækka ætti veiði­gjöld strax í haust. „Þannig eru stóru átaka­lín­urnar inni í rík­is­stjórn­inni sjálfri og vand­séð að nefnd Þor­steins Páls­sonar geti stigið skref til breyt­inga,“ skrifar Svandís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár