Segir veiðigjöld aldrei verða „meiriháttar tekjustofn fyrir ríkissjóð“

Ráðgjafi nefndar um sann­gjarn­ari gjald­töku rík­is­ins vegna nýt­ingar á fisk­veiði­auð­lind­inni segir að menn hafi séð ofsjónum yfir hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Hann verði hissa þegar þeir agn­ú­ast út í arð­greiðslur í geir­anum.

Daði Már Krist­ó­fers­son, for­seti Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands og ráð­gjafi nefndar sem á að móta nýjar til­lögur um fyr­ir­komu­lag auð­linda­gjalds í sjáv­ar­út­vegi, segir að sér finn­ist hug­myndir manna „um umfang rentu í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi oft vera skringi­lega bjart­sýnar.“ Veiði­gjöld verði aldrei neinn meiri­háttar tekju­stofn fyrir rík­is­sjóð og muni aldrei leysa af hólmi tekju­skatta. Menn hafi því að ein­hverju leyti séð „tölu­verðum ofsjónum yfir hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi.“

Þetta kemur fram í við­tali við Daða Má, sem er pró­fessor og auð­linda­hag­fræð­ingur, í Fiski­fréttum í dag.

Í við­tal­inu segir Daði að eng­inn vafi leiki á því að kvóta­kerfið hafi skilað Íslend­ingum árangri. Mjög áreið­an­leg töl­fræði sé til um það og í dag sé eng­inn sjáv­ar­út­vegur í heimunum betri í að skapa verð­mæti úr hrá­efni en íslenskur sjáv­ar­út­vegur. „Það er ekki þar með sagt að við séum komin á ein­hverja enda­stöð eða hann sé full­kom­inn, það er svo fjarri lagi. En það er samt ljóst að kerfið hefur hjálpað í þeirri þróun[...]En nú skal ég vera hrein­skil­inn með það að ég er mik­ill stuðn­ings­maður kvóta­kerf­is­ins, þó það sé alls ekki galla­laust[...]Ef það þarf að velja á milli þess að vera með annað hvort óarð­bærar veiðar eins og til dæmis Norðmenn eða Evr­ópu­sam­bandið stunda eða stjórn­lausar veiðar eins og er víða í heim­inum, og þess að þurfa að sætta sig við þessa tak­mörkun sem fylgir kvóta­fyr­ir­komu­lag­inu, þá er eng­inn vafi í mínum huga að þetta er lang­sam­lega besta fyr­ir­komu­lagið,“ segir Daði við Fiski­fréttir.

Þar seg­ist hann einnig alltaf verða hissa þegar menn fari að agn­ú­ast út í arð­greiðslur til eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja. „Það er nú einu sinni þannig að ef þú ætlar að fjár­festa í atvinnu­rekstri þá ger­irðu það ekki án þess að ætl­ast til þess að fá eitt­hvað í þinn hlut. Og mér finnst að menn þurfi þá að skoða hvort þessar arð­greiðslur eru meiri eða minni en eðli­legt er fyrir atvinnu­rekstur með sam­bæri­lega áhættu, frekar en að bera þær alltaf saman við veiði­gjaldið. Ef þú getur sýnt fram á að arð­greiðsl­urnar séu alveg út úr korti miðað við bundið fjár­magn, þá geta menn farið að tala saman.“

Góð tíð hjá sjávarútvegi eftir hrun

Eigið fé íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja var rúm­lega 220 millj­arðar króna í lok árs 2015. Það var nei­kvætt um 80 millj­arða króna í lok árs 2008 og jókst því um rúm­lega 300 millj­arða króna frá þeim tíma. Þá á eftir að taka til­lit til þeirra 54,3 millj­arða króna sem eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa greitt sér út í arð frá byrjun árs 2010 og til loka árs 2015, enda hafa þeir pen­ingar verið greiddir út úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum til eig­enda þeirra. Alls voru 38,2 millj­arðar króna greiddir í arð árin 2013, 2014 og 2015.

Þegar sú upp­hæð er lögð saman við eigið féð hefur hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins vænkast um rúm­lega 354 millj­arða króna á örfáum árum. Upp­lýs­ing­arnar um eigið fé sjáv­ar­út­veg­ar­ins, bæði veiða og vinnslu, koma fram í hag­tíð­indum Hagstofu Íslands um hag veiða og vinnslu árið 2015.

Hagnaður íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja fyrir afskriftir, fjár­magns­kostnað og tekju­skatt á árinu 2015 var tæp­lega 70 millj­arðar króna. Hreinn hagn­aður sjáv­ar­út­vegs var 45,4 millj­arðar króna á því ári þegar búið var að standa skil á öllum kostn­aði. Sam­an­lagt skil­aði íslenskur sjáv­ar­út­vegur hreinum hagn­aði upp á 287 millj­arða króna á sjö ára tíma­bili, frá 2009 til loka árs 2015.

Veiði­gjald útgerð­ar­innar fór úr 9,2 millj­örðum fisk­veiði­árið 2013/2014 í 7,7 millj­arða fisk­veiði­árið 2014/2015. Í reikn­ingum fyr­ir­tækj­anna er veiði­gjaldið talið með öðrum rekstr­ar­kostn­aði og því er búið að taka til­lit til þess þegar hreinn hagn­aður er reikn­aður út. Á fisk­veiði­ár­inu 2015/2016 voru þau áætluð 7,4 millj­arðar króna og á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári er það áætlað 4,8 millj­arðar króna. Það er um átta millj­örðum króna minna en þau voru fisk­veiði­árið 2012/2013, þegar þau voru 12,8 millj­arðar króna. Veiði­gjöldin sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiða til rík­is­sjóðs hafa því lækkað um átta millj­arða króna á sama tíma og fyr­ir­tækin hafa hagn­ast mikið.

Nefnd skipuð um sanngjarna gjaldtöku

Í maí var gengið frá skipun nefndar til að móta til­lögur um hvernig tryggja megi sann­gjarna gjald­töku fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. For­maður nefnd­ar­innar er Þor­steinn Páls­son sem skip­aður er af Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Aðrir sem sitja í nefnd­inni eru Hanna Katrín Frið­riks­son (fyrir Við­reisn), Logi Ein­ars­son (fyrir Sam­fylk­ingu), Mörður Ing­ólfs­son (fyrir Pírata), Páll Páls­son (fyrir Fram­sókn­ar­flokk), Svan­dís Svav­ars­dóttir (fyrir Vinstri græn), Teitur Björn Ein­ars­son (fyrir Sjálf­stæð­is­flokk) og Theo­dóra S. Þor­steins­dóttir (fyrir Bjarta fram­tíð). Daði er síðan, líkt og áður sagði, einn þeirra sem starfar sem ráð­gjafi nefnd­ar­innar.

Nefndin á að skila til­lögum sínum til ráð­herra í formi laga­frum­varps eigi síðar en 1. des­em­ber á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár