Reynt að múta lögreglumanni í Namibíu

Spillingar­lögreglan hefur handtekið mann, sem reyndi að hindra framgang rétt­vísinnar við rannsókn á Samherja­skjölunum.

Maður hefur verið hand­tekinn af spillingar­lögreglunni í Namibíu fyrir að hafa reynt að múta rannsóknar­lögreglu­manni, og þannig hindrað framgang rétt­vísinnar.

Frá þessu er greint í fjöl­miðlinum Informanté í dag, en það er Paulus Noa, sem stýrir rannsókn spillingar­lögreglunnar, sem stað­festir þetta.

Samkvæmt umfjölluninni mun maður hafa reynt – fyrir hönd eins þeirra sem er í haldi lögreglu og hefur verið ákærður vegna mútgreiðslna við útgáfu á kvóta sem Samherji nýtti sér – að mútu lögreglu­manni til að geta nálgast fé sem hefur verið fryst í tengslum við rann­sóknina.

Rann­sóknin á Samherja­skjölunum er í fullum gangi í Namibíu, Angóla, Noregi og á Íslandi, en eins fram hefur komið, eru sex einstaklingar í haldi í Namibíu vegna málsins og eignar þeirra – banka­reikningar þar á meðal – hafa verið frystar.

Í fyrri umfjöllun Informanté hefur komið fram að maður sem starfaði fyr­ir Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráðherra Namib­íu, hafi verið hand­tek­inn fyr­ir að fjar­lægja gögn af heim­ili ráðherr­ans. Sú rann­sókn er enn í gangi, að því er fram kemur í umfjöllun Informanté.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár