Hlæjandi Spánverji orðinn holdgervingur baráttu um ESB-umsókn á Íslandi

Myndband af eldri manni sem hlær ofsa­fengnum, skærum og fyndnum hlátri í spænskum sjónvarps­þætti er orðið að andlagi barátta andstæðinga og stuðnings­manna aðildar að Evrópu­sambandinu á Íslandi. Vinsælt hefur verið að setja nýjan texta við mynd­bandið og nú hafa bæði stuðnings­menn og helstu andstæðingar Evrópu­sambands­aðildar nýtt sér það til að lítillæka þá sem eru þeim ósammála í netheimum.

Í fyrra mynd­bandinu er gert stólpa­grín af Gunnari Braga Sveins­syni utan­ríkis­ráðherra, og Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni forsætis­ráðherra. Gunnar Bragi er þar sagður hafa farið með bréfið sem átti að enda Evrópu­sambands­umsókn Íslands að beiðni Þórólfs Gísla­sonar, kaup­félags­stjóra hjá Kaup­félagi Skagfirðinga. Gunnar Bragi starfaði lengi hjá kaup­félaginu áður en hann fór á þing.

Í síðara mynd­bandinu er dæminu snúið við og textinn við hlátur­rokur Spán­verjans káta er látin snúast um grín á kostnað frekjulegrar Samfylkingar og "hins venjulega" manns sem keypti upphlaup þeirra og lét plata sig í slíkum flýti til að mótmæla á Austur­velli að þar standi hann og ber í "viðbrennt nauta­hakkið".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár