Vetrarólympíuleikarnir 2022 verða í Peking

Peking, höfuðborg Kína, hefur verið valin til að halda vetrar­ólympíu­leikana árið 2022. Borgin verður þar með sú fyrsta til þess að halda bæði sumar- og vetrar­ólympíu­leika en sumar­ólympíu­leikarnir voru haldnir í borginni árið 2008. Kínverjar hyggjast endurnýta marga af þeim íþrótta­leikvöngum sem byggðir voru fyrir Ólympíu­leikana 2008.

Ólympíu­nefndin, sem kýs um gestgjafa, fundar þessa vikuna í Kúala Lumpur í Malasíu. Keppinautur Peking var borgin Almaty, stærstu borg Kazakhstan. Blaða­maður New York Times segir að með valinu virðist nefndin kjósa kunnug­lega, kínverska skipuleggjendur í Peking umfram Almatry sem minna er vitað um. Áður höfðu fjórar evrópskar borgir dregið sig út úr valinu. Meðal þeirra voru skipuleggjendur í bæði Osló og Stokk­hólmi sem lýstu yfir áhuga á fyrri stigum ferlisins. Pólitískar og fjárhagslegar ástæður urðu hins vegar til þess að borgar­yfirvöld sóttu ekki um gestgjafa­hlutverk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár