Þrír af hverjum fjórum kjósendum af spænskum eða latneskum uppruna þola ekki Donald Trump

Ný skoðana­könnun sýnir að þrír af hverjum fjórum kjósendum af spænskum eða latneskum uppruna líta Donald Trump, auðkýfinginn sem sækist eftir því að verða forseta­fram­bjóðandi Repúblikana­flokksins, neikvæðum augum. Frá þessu er greint á vef NBC. Trump hefur verið á miklu skriði í skoðana­könnunum að undan­förnu og mælst líklegastur allra þeirra sem sækjast eftir útnefningu Repúblikana­flokksins til að hljóta hana. Hann hefur látið fjölmörg umdeild ummæli falla frá því að hann tilkynnti um framboð sitt og sérstak­lega beint sjónum sínum að innflytjendum frá Mexíkó. Hann hefur meðal annars ásakað yfirvöld í Mexíkó um að senda glæpamenn og nauðgara til Banda­ríkjanna.

Þrátt fyrir þetta hefur Trump haldið því fram að hann njóti mikils stuðnings í samfélagi þeirra sem eru af spænskum eða latneskum uppruna í Banda­ríkjunum. Könnunin, sem var gerð fyrir NBC, Wall Street Journal og Telemundo, gefur hins vegar hið þveröfuga til kynna. Þar sögðust 75 prósent þeirra 250 af þeim uppruna sem spurðir voru um álit sitt á Trump hafa neikvætt álit á honum. Þar af sögðust 61 prósent hafa mjög neikvætt álit á honum.

Rúmlega helmingur þeirra sem spurðir voru álits á Trump í könnuninni sögðu að ummæli hans um Mexíkana væru móðgandi kynþáttarníð sem ætti ekki heima í barátt­unni fyrir útnefningu á forseta­fram­bjóðanda flokks. Þá sögðust 69 prósent aðspurðra að Trump væri að skaða ímynd Repúblikana­flokksins með yfir­lýsingum sínum og hegðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár