Barack Obama: Það er eitthvað að hjá okkur

Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, ávarpaði blaða­mannfund í Hvíta húsinu nú undir kvöld, vegna árásarinnar Emanuel AME kirkjuna í Charleston í gær, þar sem níu létu lífið. „Það er eitthvað að hjá okkur. Við þurfum að horfast í augu við staðreyndirnar, því fjölda­morð af þessu tagi eru ekki að eiga sér stað hjá öðrum þróuðum ríkjum[...]Það er í okkar valdi að gera eitthvað í þessu,“ sagði Obama og vitnaði til þess, að alltof oft væru fjölda­morð framin þar sem menn kæmust yfir hættuleg vopn, og beittu þeim gegn saklausu fólki.

„Ég er búinn að halda fundi eins og þessa of oft,“ sagði Obama, og áréttaði að hugur bandarísku þjóðarinnar væri hjá aðstand­endum þeirra sem hefðu látið lífið.

Lögreglan hefur Dylan Storm Roof, 21 árs gamlan karlmann, í haldi vegna árásarinnar en talið er að hann beri einn ábyrgð á fjölda­morðinu en allir sem féllu voru svartir og virðist sem kveikjan að baki árásinni hafi verið kynþátta­hatur. Byssan sem maðurinn notaði komst í hendur hans eftir að fjöl­skylda hans gaf honum hana í afmælis­gjöf, samkvæmt frásögn bandaríska fjölmiðla.

Málið er í rannsókn, og hefur lögreglan varist frétt hvað varðar nákvæmis­atriði við rann­sóknina.

https://www.youtube.com/watch?v=pDkNvCoL8uc

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár