Flokkur fólksins sækir fylgið til ómenntaðra og tekjulágra á Suðurlandi og Suðurnesjum

Fylgi Flokks fólks­ins hefur ekki mælst mikið síð­ast­liðið ár. Í nóv­em­ber er með­al­tals­fylgið 3,9 pró­sent sem myndi lík­ast til ekki duga flokknum til að fá þing­mann. Áferð kjós­enda Flokks fólks­ins er þó enn svipuð því sem hún var fyrir rúmum þremur árum.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Flokkur fólks­ins var að mörgu leyti einn helsti sig­ur­veg­ari síð­ustu þing­kosn­inga. Flokk­ur­inn hafði boðið fram í fyrsta sinn í kosn­ing­unum 2016 og fengið 6.707 atkvæði, eða 3,5 pró­sent allra greiddra atkvæða. Það dugði ekki til að ná inn manni á þing.

[box]Flokkur Ingu Sæland tók því nýjum kosn­ingum ári síðar fagn­andi. Þegar talið var upp úr kjör­köss­unum þá reynd­ust atkvæðin vera 13.502, eða rúm­lega tvö­falt fleiri en í októ­ber 2016. Hlut­fallið var 6,9 pró­sent og þing­menn­irnir fjórir.

Þar skipti ekki síst máli frammi­staða for­manns­ins í síð­ustu leið­togaum­ræðum sem fram fóru í sjón­varps­sal RÚV, kvöldið áður en lands­menn gengu að kjör­klef­unum.

Þar varð Inga klökk þegar hún flutti tölu um fram­tíð­ar­sýn sína, sem var að allir ættu að geta gengið um fal­lega landið okkar, borið höf­uðið hátt og verið stolt að því að vera Íslend­ingar. „Mín fram­tíð­ar­sýn er sú að öryrkjum líði ekki eins og ann­ars flokks þjóð­fé­lags­þegnum í þjóð­fé­lag­inu okkar. Að gamla fólkið okkar geti lifað hér með reisn og eigi áhyggju­laust ævi­kvöld. Að 9,1 pró­sent barn­anna okkar líði ekki hér mis­mik­inn skort, að 25 pró­sent barn­anna okkar búi ekki við óvið­un­andi hús­næð­is­kost.“

Síðar sagði hún að eng­inn Íslend­ingur „ætti að þurfa að búa í tjaldi eða í hjól­hýsi niðri í Laug­ar­dal eða nokk­urs staðar ann­ars staðar. Það er á morgun sem að þessi rödd er til­búin að tala okkar máli, þetta er tæki­færið sem við höfum til þess að fá upp­reisn í þessu sam­fé­lagi.“

Þingflokkurinn helmingaðist vegna Klausturmálsins

Rúmu ári síðar var allt í upp­námi í flokknum. Tveir þing­menn hans, Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son, höfðu farið á Klaust­ur­bar og setið þar með drukknum þing­mönnum Mið­flokks­ins að ræða ýmis­legt, meðal ann­ars stjórn­mál, á óvið­ur­kvæmi­legan hátt. Samtöl þeirra voru tekin upp og þeim upp­tökum komið til fjöl­miðla.

Á fund­inum var talað með niðr­andi hætti um konur sér­­­stak­­­lega, og lét Karl Gauti hafa eftir sér að Inga Sæland gæti ekki stjórnað Flokki fólks­ins. Þá var umtals­vert rætt um það á fund­inum að þeir tveir myndu ganga til liðs við Mið­flokk­inn.

Karl Gauti og Ólafur voru reknir úr Flokki fólks­ins í lok nóv­em­ber 2018. Ástæðan var alvar­legur trún­að­ar­brestur. Inga Sæland skrif­aði svo harð­orða grein í Morg­un­blaðið um þessa tvo fyrr­ver­andi félaga sína í jan­ú­ar 2019.

Þar sagði hún að fund­­ur­inn á Klaust­­ur­bar hafi haft skýrt mark­mið: að fá Ólaf og Karl Gauta til að ganga til liðs við Mið­­flokk­inn. „Þess vegna sat gervöll stjórn Mið­­flokks­ins á barnum Klaustri með þeim. Til­­efni fund­­ar­ins aug­­ljóst, þessi „hætt­u­­legi“ flokkur fátæka fólks­ins sem auð­­mað­­ur­inn Sig­­mundur Davíð [Gunn­laugs­­son] og félagar hans vildu fyrir hvern mun koma fyrir katt­­ar­­nef.“

[adspot]Þar sagði hún Karl Gauta og Ólaf hafa mæta­vel vitað hvað til stóð. „Þeir voru að svíkja flokk­inn sem kom þeim á þing. Er upp­­víst varð hvað þarna hafði farið fram átti stjórn Flokks fólks­ins engan annan kost en að fara fram á afsögn þess­­ara tveggja þing­­manna.“

22. febr­úar 2019 gengu Karl Gauti og Ólafur í Mið­flokk­inn eftir að hafa starfað sem óháðir þing­menn um skeið.

Minna fylgi en sömu breytur ráðandi

Fylgi Flokks fólks­ins hefur sveifl­ast nokkuð á kjör­tíma­bil­inu í könn­unum MMR. Minnst mæld­ist það 3,6 pró­sent en mest átta pró­sent fyrir um ári síðan.

[links]Frá því í des­em­ber í fyrra hefur það hins vegar ein­ungis einu sinni mælst rétt yfir fimm pró­sent og í síð­ustu tveimur könn­unum MMR mæld­ist með­al­tals­fylgið 3,9 pró­sent, sem myndi lík­ast til ekki duga til að ná manni inn á þing.

Fylgi flokks­ins kemur aðal­lega frá lág­launa­fólki og þeim sem hafa lokið skyldu­námi sem æðstu menntun. Hjá kjós­endum með undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur á mán­uði mælist stuðn­ingur við Flokk fólks­ins 9,8 pró­sent á meðan að hann er 1,2 pró­sent hjá þeim sem eru með meira en 1,2 millj­ónir króna á mán­uði. Á meðal þeirra sem eru með grunn­skóla­menntun sem æðstu menntun mælist stuðn­ingur við Flokk fólks­ins 6,4 pró­sent en á meðal þeirra sem eru með háskóla­próf mælist hann 1,1 pró­sent.

Stuðn­ing­ur­inn er lang­mestur á Suð­ur­landi og á Suð­ur­nesjum, en á því land­svæði sögð­ust 10,4 pró­sent aðspurðra í síð­ustu tveimur könn­unum MMR styðja Flokk fólks­ins. Stuðn­ing­ur­inn er lít­ill í öllum öðrum lands­hlutum.

Þetta er mjög svipuð staða og var í kringum síð­ustu kosn­ingar þegar kann­anir MMR bentu til þess að mestur stuðn­ingur við flokk­inn væri hjá grunn­skóla­mennt­uðum, tekju­lágum og á Suð­ur­land­inu. Munurinn þá og nú er sá að fleiri studdu flokk­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Norð­ur­landi haustið 2017 en í nóv­em­ber 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár