Viðreisn sækir helst fylgi til vel menntaðra og tekjuhárra karla á höfuðborgarsvæðinu

Enginn flokkur sem mældur er í könn­unum MMR nýtur jafn lít­illa vin­sælda hjá tekju­lægstu lands­mönnum og Viðreisn. Flokk­ur­inn virð­ist höfða mun betur til karla en kvenna.

Þorgerður Katrín Gunnarssdóttir er formaður Viðreisnar og Daði Már Kristófersson var fyrr í haust kosinn varaformaður flokksins.
Þor­gerður Katrín Gunn­arssdóttir er for­maður Við­reisnar og Daði Már Kristófers­son var fyrr í haust kos­inn vara­for­maður flokks­ins. Mynd: Viðreisn

Viðreisn var form­lega stofnuð á fundi í Hörpu 24. maí 2016. Stofnun flokks­ins hafði átt sér nokkurn aðdrag­anda, og má rekja til þess að hópur frjáls­lyndra og alþjóða sinn­aðra áhrifa­manna innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins fannst þeir blekktir eftir kosn­ing­arnar 2013.

[box]Hópurinn taldi sig hafa fengið skýr lof­orð frá flokki sínum um að umsókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu yrði ekki dregin til baka nema með þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í aðdrag­anda kosn­inga 2013. Þegar það var svo gert í febr­úar án slíkrar atkvæða­greiðslu töldu þessir ein­stak­lingar sig hafa verið illa svikna og hann fór fljót­lega að vinna að mótun nýs fram­boðs. Benedikt Jóhann­es­son var fyrsti for­maður Við­reisnar en á meðal ann­arra áhrifa­manna úr Sjálf­stæð­is­flokknum sem fylgdu með yfir í hið nýja stjórn­mála­afl voru fyrr­ver­andi for­mað­ur­inn Þor­steinn Pálsson og fyrr­ver­andi vara­for­mað­ur­inn Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir.

Í fyrstu kosn­ing­unum sínum, haustið 2016, náði Viðreisn í 10,5 pró­senta atkvæða og eftir langar og strangar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum end­aði flokk­ur­inn ásamt Bjartri fram­tíð í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Sú rík­is­stjórn náði að verða óvin­sælasta rík­is­stjórn lýð­veld­is­tím­ans og sat í ein­ungis átta mán­uði. Viðreisn fór ekki vel út úr þeirri stjórn­ar­setu. Þegar allt stefndi í að flokk­ur­inn myndi þurrkast út í aðdrag­anda kosn­inga 2017 hætti Benedikt sem for­maður og Þor­gerður Katrín tók við. Á end­anum náði flokk­ur­inn í 6,7 pró­sent atkvæða og hélt sér á lífi.

Flokk­ur­inn bauð í fyrsta sinn fram í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2018. Þar fékk hann til að mynda 8,2 pró­sent atkvæða í Reykja­vík og mynd­aði meiri­hluta þar með þremur öðrum flokkum á miðj­unni og til vinstri.

Flokkur fólks á miðjum aldri

Staða Við­reisnar nú er þannig að í síð­ustu tveimur könn­unum MMR hefur fylgi flokks­ins mælst að með­al­tali 9,1 pró­sent. Það er meira fylgi en Viðreisn fékk 2017 en minna en flokk­ur­inn fékk 2016.

[adspot]Viðreisn virð­ist vera flokkur fólks á miðjum aldri. Fylgi flokks­ins hjá kjós­endum undir þrí­tugu mælist 6,3 pró­sent og hjá kjós­endum sem eru yfir 68 ára er það ein­ungis 1,2 pró­sent. Hjá 30 til 67 ára mælist fylgið hins vegar um 11,5 pró­sent.

Flokk­ur­inn á erfitt upp­dráttar úti á landi. Fylgið er að mestu bundið við höf­uð­borg­ar­svæðið, þar sem Viðreisn mælist með 11,5 pró­sent stuðn­ing, en stuðn­ing­ur­inn er einnig yfir heild­ar­fylgi á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum. Á Norður- og Aust­ur­landi mælist fylgi flokks­ins hins vegar undir tveimur pró­sentum og á Suð­ur­landi og Suð­ur­nesjum er að 5,4 pró­sent.

Karlar og tekjuhærri hrifnir af Viðreisn

Karlar eru mun hrifn­ari af Viðreisn en konur. Um 70 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa flokk­inn eru karl­kyns. Það hlut­fall var 56 pró­sent í könn­unum MMR sem gerðar voru í kringum síð­ustu kosn­ingar.

[links]Þeir sem hafa mest lokið skyldu­námi í grunn­skóla hugn­ast ekki sér­stak­lega að kjósa Viðreisn. Hjá þeim hópi er fylgi flokks­ins 4,0 pró­sent. Hjá þeim sem lokið hafa háskóla­prófi mælist Viðreisn hins vegar þriðji stærsti flokkur lands­ins með 14,3 pró­sent fylgi.

Flokk­ur­inn höfðar líka mun betur til tekju­hærri lands­manna. Mestra vin­sælda nýtur hann hjá tekju­hópnum sem er með 800 til 1.199 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur, en þar segj­ast 15,2 pró­sent að þeir myndu kjósa Viðreisn. Hjá þeim sem eru með meira en 1,2 millj­ónir króna á mán­uði er fylgið 12,5 pró­sent.

Gamanið kárnar hins vegar þegar lægri tekju­hópar eru skoð­aðir og hjá þeim lands­mönnum sem eru með undir 400 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur mælist fylgi Við­reisnar 2,4 pró­sent. Enginn annar flokkur sem mældur er í könn­unum MMR kemst nálægt því að vera jafn lítið vin­sæll hjá tekju­lægstu lands­mönn­unum. Sós­í­alista­flokk­ur­inn er í næst neðsta sæti þar með 8,6 pró­sent fylgi.

Vilja eyða 123 milljörðum

Viðreisn kynnti aðgerð­ar­á­ætlun sína til að bregð­ast við COVID-19 far­aldr­inum í byrjum sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Pakkinn sner­ist um að hrinda alls sjö aðgerðum í fram­kvæmd. Áætlaður kostn­aður við aðgerð­irnar, sem áttu að skila sér til baka í auknum hag­vexti, var 123 millj­arðar króna.

Til­lög­urnar sjö fólu í sér að opin­berum fram­kvæmdum yrði flýtt og þær auknar, að auknir hvatar yrðu inn­leiddir í loft­lags­málum, að brugð­ist yrði við auknu atvinnu­leysi með tíma­bundnum úrræðum fyrir fólk í atvinnu­leit, að fjár­fest yrði í lýð­heilsu þjóð­ar­innar, að álögum yrði létt á fyr­ir­tæki, að störf yrðu varin og nýsköpun efld.

Stærsti, og dýr­asti, hluti til­lögu­pakk­ans sneri að því að flýta fram­kvæmdum hins opin­bera, en Viðreisn vildi verja 80 millj­örðum króna í það á næsta ári. Borg­ar­lína og aðrar sam­göngu­fram­kvæmdir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru sér­stak­lega nefndar í því sam­hengi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár