Útflutningur sjávarafurða til Kína eykst

Norðmenn hafa selt sjáv­ar­af­urðir fyrir 755 millj­arða íslenskra króna fyrstu sex mán­uði árs­ins sem er met­sala á hálfu ári. Kína er jafn­framt í 7. sæti yfir stærstu við­skipta­lönd Íslands í sjáv­ar­út­vegi.

Makríll
Makríll Mynd: Wiki Commons/Ed Bierman

Mikill vöxtur hefur verið í útflutn­ingi á laxi til Kína frá Noregi og hefur útflutn­ingur á mak­ríl jafn­framt auk­ist en Norðmenn hafa selt sjáv­ar­af­urðir fyrir 51,2 millj­arð noskrar króna, eða 755 millj­arða íslenskra króna, fyrstu sex mán­uði árs­ins sem er met­sala á hálfu ári. Þetta er 4,4 millj­örðum meiri sala en á fyrri helm­ingi 2018. Fiski­fréttir greina frá.

Geng­is­mál hafa einnig haft áhrif á auknar tekjur, sam­kvæmt frétt­inni en gengi norsku krón­unnar hefur verið veikt gagn­vart evru og dollar sem hefur skilað sér í hærri verðum í útflutn­ingi á norskum sjáv­ar­af­urðum.

Í frétt­inni kemur fram að það sem af er ári hafi vöxtur verið jafnt í útflutn­ings­verð­mætum og útflutn­ings­magni á ferskum laxi til Kína. Samtals nemi þessi útflutn­ingur 12.130 tonnum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Það sé meira en flutt var út til Kína af ferskum laxi allt árið 2018. Þá nam útflutn­ing­ur­inn 12.000 tonnum.

Kína í 7. sæti yfir stærstu viðskiptalönd Íslands í sjávarútvegi

Mikil aukn­ing hefur orðið í útflutn­ingi til Kína frá Íslandi af tíu stærstu við­skipta­löndum í sjáv­ar­út­vegi en útflutn­ingur hefur ríf­lega tvö­fald­ast í krónum talið á tíma­bil­inu 2014 til 2018. Á tíma­bil­inu 2010 til 2013 var Kína í 16. sæti yfir stærstu við­skipta­lönd í sjáv­ar­út­vegi en árið 2015 fór það í 15. sæti, 2016 í 9. sæti, 2017 í 8. sæti og 2018 í 7. sæti.

Frí­versl­un­ar­samn­ingur við Kína virð­ist því hafa haft jákvæð áhrif á við­skipti með sjáv­ar­af­urðir en hann tók gildi 1. júlí 2014. Til­gangur samn­ings­ins var að liðka fyrir við­skiptum á milli land­anna en hann nær aðeins til vöru­við­skipta. Samn­ing­ur­inn felur í sér nið­ur­fell­ingu tolla á flestum útflutn­ings­vörum að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum, meðal ann­ars um upp­runa sam­kvæmt upp­runa­reglum sem skil­greindar eru í samn­ingnum.

Vilja styrkja sölu- og mark­aðs­starf í Asíu

Fram kom í fréttum í síð­ustu viku að stjórn HB Granda hf. hefði sam­þykkt samn­inga um kaup á sölu­fé­lögum í Asíu og leggja þá fyrir hlut­hafa­fund til sam­þykkt­ar. Félagið gerði kauptil­boð í félögin að fjár­hæð 31,1 milljón evra eða 4,4 millj­örðum króna.

Eig­andi félag­anna gekk að til­boð­inu og er til­gang­ur­inn að styrkja sölu- og mark­aðs­starf félags­ins á alþjóða­mörk­uð­um, einkum í Asíu.

Nafni félags­ins verður breytt í Brim og Brim Seafood. Sam­kvæmt til­kynn­ing­u frá félag­inu mun nýtt vöru­merki og nafn þjóna til­gangi félags­ins vel sem sé að mark­aðs­setja og selja afurðir sem félagið veiðir og vinnur á verð­mætum alþjóða­mörk­uð­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár