Kanye West: Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til forseta Bandaríkjanna 2020

Rapparinn Kanye West lauk ræðu sinni á Video Vanguard-verðlauna­hátíð MTV-sjónvarps­stöðvarinnar í gær á því að tilkynna um væntanlegt framboð sitt til embættis forseta Banda­ríkjanna árið 2020. Samkvæmt frétt Time um málið eru skiptar skoðanir um hvort West hafi verið alvara með yfir­lýsingunni eða hvort hann hafi verið að grínast.

West hefur verið ansi duglegur við að koma sér í sviðs­ljósið á undan­förnum árum vegna neikvæðrar framkomu. Frægast var líkast til atvikið þegar hann rauk upp á svið á sömu hátíð árið 2009 eftir að Taylor Swift fékk verðlaun fyrir að hafa búið til besta tónlistar­myndband kvenn­listamanns það árið. West þreif af henni míkró­fóninn og lýsti því yfir að Beyoncé hefði átt að vinna þau.

Þau vatnaskil urðu nú, sex árum síðar, að Swift afhenti West heiðurs­verðlaun hátíðarinnar sem kennd eru við Michael Jackson. Swift hélt stutta ræðu þar sem hún talaði fallega um West og það sem hann hefði áorkað sem lista­maður og í tísku­heiminum. Sagði hún West hafa átt "einn stórkostlegasta feril sögunnar".

Í ræðu sinni fór West yfir skoðanir fólks á honum og sagði frá því að oft komist fólk að þeirri niður­stöðu að hann sé ekki jafn slæmur og af er látið eftir að hafa talað við hann. West ræddi einnig baráttu sína fyrir hag annarra lista­manna og hvernig hans kynslóð ætti að kenna börnunum sínum að trúa á sig sjálf. Síðan sagði West: "Þetta snýst um hugmyndir bróðir (e. bro)! Nýjar hugmyndir! Fólk með hugmyndir, fólk sem trúir á sann­leikann. Og já, eins og flest ykkar hafa líkast til giskað á, þá hef ég ákveðið að bjóða mig fram til forseta árið 2020".

West er giftur raun­veruleika­stjörnunni Kim Kardashian. Ef honum er alvara með framboði sínu, og ef hann ynni, þá yrði Kardashian forsetafrú Banda­ríkjanna.

Hægt er að horfa á brot úr ræðum Swift og West á vef The Guardian.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár