Bjarni segir verðtrygginguna ekki aðalatriði í kjarasamningum

Frumvarp um skref til afnáms verð­trygg­ingar hefur verið afgreitt í rík­is­stjórn, að sögn Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra. Formaður VR hefur sagt að lífs­kjara­samn­ing­ur­inn sé brost­inn ef ekki verða tekin skref til afnáms verð­trygg­ingar.

Bjarni Benediktsson og Guðmundur Ingi Kristinsson
Bjarni Bene­dikts­son og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son Deilt er um hvort upp­fylla þurfi lof­orð um skref til afnáms verð­trygg­ingar.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, seg­ist ekki telja að verð­trygg­ing­ar­mál muni setja kjara­samn­ing­ana í upp­nám. Frumvarp sem þrengir að verð­trygg­ing­unni hefur verið sam­þykkt af rík­is­stjórn, segir hann, en ein­hverjar athuga­semdir hafa verið gerðar við það.

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, spurði Bjarna um málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. Benti hann á að Bjarni hefði sagt á Alþingi í maí að vísi­tölu til verð­trygg­ingar verði ekki breytt eins og lofað hafði verið í tengslum við lífs­kjara­samn­ing­inn í fyrra. Til stóð að nota vísi­tölu án hús­næð­is­verðs til við­mið­unar. Sagði Bjarni að tals­menn laun­þega­hreyf­ing­ar­innar telji nú að það þjóni ekki hags­munum Alþingis og að það sjón­ar­mið hefði komið fram á fundi með þeim.

„Ég vil spyrja hæst­virtan fjár­mála­ráð­herra: Voru þetta allir verka­lýðs­leið­togar og ef ekki, hverjir voru það?“ sagði Guð­mundur. „Hin spurn­ingin er um lífs­kjara­samn­ing­ana: Mun hann láta þá falla með því að taka ekki á verð­trygg­ing­unni? Er það eitt­hvað sem stendur til?“

Líkt og Stundin hefur greint frá mun laga­frum­varp um skref til afnáms verð­trygg­ingar ekki taka breyt­ingum eftir sam­ráðs­ferli frá því síð­asta sumar. Rúmt ár er liðið síðan frum­varpið var kynnt í tengslum við kjara­samn­inga, en það hefur ekki enn verið lagt fram á Alþingi.

„[...] engin ástæða til þess að verð­trygg­ing­ar­mál verði eitt­hvert aðal­at­riði“

Bjarni svar­aði því til að á fund­inum hafi verið full­trúar ASÍ og ein­stakra stétt­ar­fé­laga innan ASÍ. „Spurt er hvort ég láti mér í léttu rúmi liggja að kjara­samn­ingar fari í upp­nám vegna verð­trygg­ing­ar­mála,“ sagði hann. „Ég segi bara: Það er engin ástæða til þess að það verði þannig. Ég held að við höfum haft ein­hverja jákvæð­ustu þróun, bæði vaxta og verð­bólgu, sem við höfum lengi búið við og er engin ástæða til þess að verð­trygg­ing­ar­mál verði eitt­hvert aðal­at­riði.“

Frumvarpið afgreitt úr ríkisstjórn

Þá upp­lýsti hann um að frum­varpið sem snýr að skrefum til afnáms verð­trygg­ingar hafi verið sam­þykkt af rík­is­stjórn. Það felur í sér þrjár breyt­ingar á veit­ingu verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána. Óheimilt verður að veita þau til lengri tíma en 25 ára, nema ef lán­tak­endur eru ungt eða tekju­lágt fólk sem ætti í erf­ið­leikum með aukna greiðslu­byrði sem fylgir styttri láns­tíma. Þá er lág­marks­tími slíkra lána lengdur úr fimm í tíu ár og þannig komið í veg fyrir að þau séu veitt til ann­ars en kaupa á hús­næði. Loks verður vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis lögð til grund­vallar nýjum lánum sem verða veitt. Ýmsar athuga­semdir bár­ust frá aðilum vinnu­mark­að­ar­ins og fræði­mönnum í sam­ráðs­ferli, en ekki var tekið til­lit til þeirra.

„Ég veit að það eru ein­hverjar athuga­semdir við það, en þar er ég að fylgja eftir lof­orði um að þrengja að 40 ára jafn­greiðslu­lánum, verð­tryggðum með skil­yrðum,“ sagði Bjarni. „Það er síðan alltaf álita­mál hversu langt eigi að ganga í þessum skil­yrðum.“

Guð­mundur sagði þá að Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefði lagt mikla áherslu á verð­trygg­ing­una í sam­bandi við kjara­samn­inga. „Ég get alveg upp­lýst hann um það að ég veit að leið­togi stærstu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, VR, telur verð­trygg­ing­una vera hluta af lífs­kjara­samn­ing­unum,“ sagði hann. „Og hafi ekki verið tekið á því hefur lífs­kjara­samn­ing­ur­inn verið brot­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár