Ráðherra veitir nafni nýja hraunsins formlega blessun sína

Eins og lög gera ráð fyrir hefur Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra stað­fest nafn­gift nýja hrauns­ins í landi Grinda­vík­ur­bæjar. Fagra­dals­hraun mun það heita um ókomna fram­tíð.

Eldgosið í Geldingadölum hefur verið mikið sjónarspil. Nú virðist það í rénun.
Eldgosið í Geld­inga­dölum hefur verið mikið sjón­ar­spil. Nú virð­ist það í rénun. Mynd: Golli

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur ákveðið að stað­festa ákvörðun bæj­ar­stjórnar Grinda­vik­ur­bæjar um að nýja hraunið úr eld­gos­inu í Geld­inga­dölum fái nafnið Fagra­dals­hraun.

Þetta kom fram í fund­ar­gerð bæj­ar­ráðs Grinda­víkur í vik­unni. Bæj­ar­stjórnin í Grinda­vík ákvað þetta nafn, eins og lög um örnefni gera ráð fyrir, enda er eld­gosið og hraunið nýja innan sveit­ar­fé­laga­marka Grinda­vík­ur­bæjar.

Tvö nöfn voru til skoð­unar hjá bæj­ar­stjórn­inni, sem leit­aði til íbúa í bænum eftir upp­á­stungum að nafni á nýja hraunið skömmu eftir að eld­gosið hófst í lok mars. Þau tvö nöfn sem oft­ast voru nefnd af hálfu íbúa voru Fagra­dals­hraun og Fagra­hraun, en alls bár­ust um 340 til­lögur að nafni á nýja hraunið.

Þessar til­lögur að örnefnum sendi bæj­ar­stjórnin svo inn til örnefna­nefndar, sem ráð­herra skipar, og þótti nefnd­inni ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að nota hvort örnefnið sem væri.

Bæj­ar­stjórnin ákvað þó að end­ingu að gera til­lögu um heitið Fagra­dals­hraun og eins og lög um örnefni gera ráð fyrir hefur ráð­herra nú stað­fest það form­lega.

Eldgosið virðist í rénun

Eldgosið í Geld­inga­dölum hefur nú staðið í rúma fjóra mán­uði og merki eru um að farið sé að draga úr virkni þess.

Magnús Tumi Guð­munds­son pró­fessor í jarð­eðl­is­fræði sagði við Rík­is­út­varpið í gær að svo virt­ist sem fram­boðið af kviku, sem virð­ist vera að koma beint úr möttli jarðar en ekki úr kviku­hólfi, virð­ist vera að minnka.

„Það er lík­legt að við munum horfa á minnk­andi gos sem svo fjarar út en tíma­setn­ingar eru mjög erf­iðar,“ sagði Magnús Tumi við RÚV.

Það er því óljóst enn hversu mikið Fagra­dals­hraun mun stækka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár