„Við erum í fótbolta mjög lengi, í þrjá tíma“

Þeir Ottó Örn Ragnarsson, Jakob Már Kjartansson og Alexander Sigur­steinsson eru allir níu ára og eru í 4. bekk í Vatnsenda­skóla í Kópavogi. Skóla­dagurinn þeirra hefur nú verið styttur um tvo tíma á dag og þeir fara í skólann þrjá daga í viku. Allar íþrótta­æfingar þeirra hafa fallið niður, en félagarnir eru iðnir við að finna sér eitthvað fyrir stafni og hafa lært nokkur ný orð með því að fylgjast grannt með fréttum af útbreiðslu kóróna­veirunnar.

Þrír félagar
Þrír félagar Skóla­dag­ur­inn hjá Ottó, Jakobi og Alex­ander sem eru í 4. bekk í Vatns­enda­skóla í Kópavogi hefur nú verið styttur og þeir fara núna þrjá daga í viku í skól­ann. Íþrótta- og skák­æf­ingar þeirra hafa verið felldar niður og þeir hafa nú tals­vert meiri frí­tíma en áður sem þeir nýta til ýmissa hluta. Mynd: Heiða Helgadóttir

Styttri skóla­dagur, tómstunda­starf fellur niður og mörg ný orð í fréttum. Daglegt líf íslenskra grunn­skólabarna hefur tekið tals­verðum breytingum að undan­förnu eftir að gripið var til aðgerða til að stemma stigu við útbreiðslu kóróna­veirunnar. 

Þeir Ottó Örn Ragnarsson, Jakob Már Kjartansson og Alexander Sigursteinsson eru allir níu ára og eru í 4. bekk í Vatnsenda­skóla í Kópavogi. Þeir æfa allir handbolta og fótbolta og stunda einnig skák­æfingar af kappi, allar slíkar æfingar hafa nú fallið niður en félagarnir láta ágætlega af sér, þrátt fyrir allt, og segjast litlar áhyggjur hafa af stöðu mála.

Spurðir hvað hafi breyst í þeirra lífi undan­farið svarar Jakob að allar æfingar hafi fallið niður. 

„Skólinn styttist, alveg um tvo klukku­tíma,“ bendir Ottó á. „Við erum í fríi. Það er ekkert mikið að gera,“ segir Jakob. „Við þurfum líka að taka auka­æfingar, því það eru engar æfingar,“ segir Alexander og bætir við að slíkar æfingar geri þeir vinirnir í bílskúr foreldra sinna.

Styttri skóladagur þrjá daga í viku

Félagarnir segja að búið sé að skipta árganginum þeirra niður í fleiri og smærri hópa en áður var. 

Jakob: „Þú átt ekki að fara út úr stofunni þinni nema bara til að fara á klósettið og í nesti.“

Alexander: „Og líka til að ná í eitthvað.“

„Þetta byrjaði með leður­blöku eða snák“

Ottó: „Og fara í útivist.“

Alexander: „En það má bara einn hópur fara í útivist í einu.“

Auk þess að vera búnir tveimur tímum fyrr í skólanum, eru þeir eingöngu þrjá daga vikunnar í skólanum og hafa því umtals­vert meiri frítíma nú en áður, sem þeir verja á ýmsan hátt. Jakob segist vera svolítið í tölvunni og Ottó spilar á spil.  „Við erum í fótbolta mjög lengi, í þrjá tíma,“ segir Alexander.

Þetta byrjaði með leðurblöku eða snák

Og blaða­maður Stundarinnar kom ekki að tómum kofunum hjá félögunum þegar þeir voru spurðir um ástæðu þessa alls. Þeir hafa fylgst grannt með stöðu mála og höfðu meðal annars kynnt sér uppruna kóróna­veirunnar.

Ottó: „Þetta byrjaði með leður­blöku eða snák.“

Jakob: „Og svo er þetta bara búið að dreifast.“

Aðspurðir segjast þeir ekki þekkja neinn sem hefur veikst, en vinur þeirra er í sóttkví. Þá eiga þeir líka afa og ömmur í sóttkví. 

Hafa aukið við orðaforðann

Spurðir hvort þeir viti hvað orð eins og sóttkví, samkomu­bann, einangrun og útgöngu­bann þýða segjast félagarnir hafa kynnt sér það, enda hafa þeir fylgst vel með fréttum. 

 „Ég hef áhyggjur af ömmu minni og afa“ 

Jakob: „Sóttkví er þegar þú mátt ekki fara út í tvær vikur.“

Ottó: „En þú mátt samt fara í göngutúr. Bara hitta ekki neinn.“

Jakob: „Bara hitta ekki neinn í tvær vikur. Bara þann sem býr hjá þér. Útgöngu­bann þýðir að þú átt ekki að fara út nema fara í apótek eða versla í matinn. Samkomu­bann er að þú setur einhvern takmarkaðan fjölda á stað.“

Spurðir hvort þeir hafi áhyggjur svara þeir neitandi. „En ég hef áhyggjur af ömmu minni og afa,“ segir Ottó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár