Trump neitaði að biðjast afsökunar á ummælum sínum um ólöglega innflytjendur

Auðkýfingurinn Donald Trump, sem sækist eftir útnefningu Repúblikana­flokksins til embættis forseta Banda­ríkjanna, heimsótti landa­mærin að Mexíkó í dag. Þar neitaði Trump að biðjast afsökunar á nýlegum ummælum sem hann viðhafði um ólöglega innflytjendur, þegar hann fullyrti að stór hluti þeirra væru nauðgarar. Frétta­miðillinn TIME fjallar um málið.

„Þeir voru ekkert móðgaðir,“ sagði Trump aðspurður um hvort hann teldi ummæli sín hafa móðgað spænsku­mælandi hluta Banda­ríkjanna. „Því fjöl­miðlarnir snéru út úr orðunum mínum.“

Trump sagði að sér hefði verið vel tekið í heimsókn sinni til bæjarins Laredo í Texas, þar sem yfir­gnæfandi meirihluti íbúa eru innflytjendur, en ítrekaði að hann myndi ekki skipta um skoðun sína varðandi byggingu landamæra­veggjar á milli Banda­ríkjanna og Mexíkó, sem hann hyggst láta síðarnefndu þjóðina borga fyrir verði hann kjörinn forseti.

Hættulegur staður til að vera á

Umkringdur her lífvarða og lögreglu­manna fullyrti Trump að það væri ekki heiglum hent að heimsækja landamæri ríkjanna. „Þeir segja að það sé hættulegt, en ég verð að gera þetta,“ sagði auðkýfingurinn litríki við blaðamenn um leið og hann steig frá borði Boeing 757 einka­þotunnar. „Það stafar mikil hætta frá ólöglegum innflytjendum, það stafar gríðar­lega mikil hætta frá ólöglegum innflytjendum við landa­mærin.“

Henry Cuellar, þingmaður Demókrata frá Laredo, sagði í samtali við TIME að ummæli Trump stæðust enga skoðun. „Hann talar um ofbeldi hér, en í Laredo eru framin þrjú morð á hverja 100 þúsund íbúa (2013), en miðað við Washington D.C., þar sem hann langar að fá nýja vinnu, eru framin 16 morð á hverja 100 þúsund íbúa. Og ef þú berð glæpa­tíðnina í Laredo við New York borg, þar sem hann býr, þá get ég fullyrt að Laredo er mun öruggari staður.“

Farsælast að bjóða sig fram sem Repúblikani

Í Laredo búa 250 þúsund íbúar, en um 95 prósent þeirra eru spænsku­mælandi. Trump hafði ráðgert að hitta forsvars­menn landamæra­eftirlitsins á flug­vellinum í Laredo, en þeir síðarnefndu hættu við fundinn snemma í dag.

Trump var spurður út í hótanir sínar um að bjóða sig fram sem sjálf­stæður og óháður forseta­fram­bjóðandi hljóti hann ekki brautar­gengi á lands­þingi Repúblikana­flokksins. „Ég er Repúblikani. Ég er íhalds­maður. Ég vil bjóða mig fram sem Repúblikani. Besta leiðin fyrir mig til að vinna er að hljóta útnefningu flokksins.“

Auðkýfingurinn umdeildi hefur fengið vilyrði fyrir því að hann fái að taka þátt í fyrstu kappræðum lands­þings Repúblikana­flokksins eftir tvær vikur.

Hér má sjá myndband sem TIME tók saman um heimsókn Trump til Laredo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár