Veðsetning 87 íbúða á Suðurnesjum sem Íbúðalánasjóður seldi til eignarhaldsfélagsins Tjarnarverks ehf. nú í vor nemur einungis 500 milljónum króna þrátt fyrir að heildarverðmæti eignanna samkvæmt fasteignamati sé rúmlega 1.422 milljónir króna. Þetta kemur fram í veðbandayfirliti íbúðanna sem um ræðir en þær hafa verið til umræðu í fjölmiðlum vegna þess að Tjarnarverk ákvað að hækka leiguna hjá leigutökunum umtalsvert eftir að fyrirtækið keypti eignirnar. Um er að ræða tvö veðskuldabréf frá Virðingu sem hvort um sig er upp á 250 milljónir króna. Virðing fjármagnaði því kaup Tjarnarverks á íbúðunum, að minnsta kosti að hluta.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
















































Athugasemdir