Píratar bæta við sig fylgi - Framsóknarflokkur mælist með 8,6 prósent

Flokkur Pírata mælist með 32,7 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun MMR, og bætir við sig 0,7 pró­sentu­stigum á milli kann­ana. Píratar mæl­ast sem fyrr lang stærsti stjórn­mála­flokkur á Íslandi sam­kvæmt könnun MMR.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með 23,1 pró­sent fylgi, og bætir við sig 1,2 pró­sentum á milli kann­ana. Sam­fylk­ingin nýtur stuðn­ings 13,1 pró­sents aðspurðra og bætir við sig 2,4 pró­sentum frá því í apríl. Vinstri græn mæl­ast nú með 10,4 pró­sent og tapa 0,4 pró­sentu­stigum frá síð­ustu könnun. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins er enn í frjálsu falli sam­kvæmt skoð­ana­könnun MMR, en flokk­ur­inn mælist nú með 8,6 pró­sent fylgi, og lækkar um 2,2 pró­sent á milli kann­ana.

Hið sama má segja um Bjarta fram­tíð, sem nú nýtur stuðn­ings 6,3 pró­senta aðspurðra, sam­an­borið við 8,3 pró­sent í síð­ustu könnun.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eykst á milli kann­ana og mælist nú 31,4 pró­sent, sam­an­borið við 30,7 pró­sent í síð­ustu mæl­ingu MMR. Þá naut rík­is­stjórnin stuðn­ings 35,3 pró­senta aðspurðra í mæl­ingu MMR sem lauk 8. apríl síð­ast­lið­inn.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár