Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Eins og svo oft áður tekur Business Insider saman lista yfir mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag.


  1. Þjóð­verjar juku eftirlit með landa­mærum sínum við Austur­ríki tíma­bundið í gær. Metfjöldi hælis­leitenda hefur komið yfir landa­mærin undan­farnar vikur.

  2. Egypskar öryggis­sveitir myrtu óvart mexíkóska ferðamenn þegar þeir eltust við hryðju­verkamenn í gær. Stjórn­völd segja að ferða­mennirnir hafi ekki látið vita af ferðum sínum og verið á svæði þar sem umferð er bönnuð.

  3. Yfir þrjú þúsund manns í Norður-Kaliforníu hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógar­elda sem hafa geisað á stórum svæðum yfir helgina.

  4. Hækkanir urðu á asískum mörkuðum við opnun þeirra þrátt fyrir lélegar hagtölur sem komu frá Kína yfir helgina.

  5. Skoðana­kannanir í Grikk­landi sýna að Syriza og Nýtt lýðræði eru nánast jafnir. Kosningar í Grikk­landi fara fram eftir viku.

  6. Veður­stofan í Bretlandi spáir því að 2015 og 2016 gætu orðið hlýjustu ár frá því að mælingar hófust.

  7. Forsíðu­úttekt í blaðinu Barron's spáir því að hlutabréf í smásölu­risanum Alibaba gætu lækkað um 50% til viðbótar við það sem þegar hefur orðið.

  8. Bhumibol Adulyadej, konungur Taílands, er enn á spítala en þar hefur hann dvalið í þrjá mánuði. Um helgina fékk hann meðhöndlun vegna blóð­sýkingar og lungna­bólgu.

  9. Aso-eldfjallið í Japan hóf að gjósa í dag. Ekki hafa borist fregnir af slysum vegna eldgossins.

  10. Jeremy Corbyn var kjörinn formaður Verkamanna­flokksins um helgina. Margir spá því að þetta muni hjálpa Íhalds­flokknum í næstu kosningum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár