Glitnir banki gerði fjárnám hjá Illuga Gunnarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins og núverandi menntamálaráðherra, í nóvember 2007. Krafa bankans á hendur Illuga nam rúmlega 7 milljónum króna og voru dráttarvextir nærri 1.200 þúsund af þeirri upphæð. Kröfugerðin var vegna skuldabréfs í erlendum myntum upp á tæplega 5,5 milljónir króna sem hvíldi á íbúð hans á Ránargötu í Reykjavík. Lánið hafði verið notað til að fjármagna íbúðarkaupin. Þetta kemur fram í skjali, endurriti úr gerðarbók, frá Sýslumanninunum í Reykjavík sem þinglýst var á íbúð Illuga á þessum tíma.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir