Peningarnir streyma inn og út í Grikklandi: Endurgreiða AGS og Seðlabanka Evrópu

Grísk stjórn­völd fengu í dag 7,2 milljarða evra lán frá Evrópu­sambandinu, sem samþykkt var að veita síðastliðinn föstudag. Nær allri upphæðinni var samstundið varið í að endur­greiða lán sem fallin voru á gjalddaga, meðal annars ríflega tveggja milljarða greiðslu til Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins (AGS). Framkvæmda­stjóri upplýsinga­mála hjá AGS staðfesti í dag að greiðsla hafi borist frá Grikk­landi. Skuldir Grikk­lands gagnvart AGS eru því ekki lengur skilgreindar sem gjald­fallnar, eins og þær hafa verið frá 30. júní. Þann dag greiddu grísk stjórn­völd ekki um 1,6 milljarða af láni frá AGS og landið varð fyrst þróaðra ríkja til að standa ekki við skuld­bindingar sínar gagnvart AGS.

Á vef The Guardian er greint frá því að Grikkir hafi auk þess endur­greitt Seðla­banka Evrópu um 3,5 milljarða evra lán í dag, sem einnig var fallið á gjalddaga. Til viðbótar greiddu Grikkir seðla­bankanum um 700 milljónir evra í dráttar­vexti. Endur­greiðslan skiptir miklu máli fyrir áfram­haldandi veru Grikk­lands í evru­samstarfinu.


Grískir bankar opnuðu í morgun eftir að hafa verið lokaðir í þrjár vikur. Biðraðir mynduðust við útibú bankanna. Fjármagns­höft eru enn við lýði í landinu og er hverjum einstaklingi heimilt að taka út aðeins 420 evrur á viku, jafnvirði um 62 þúsund króna. Gríska kaup­höllin er áfram lokuð.


Grikkland og kröfu­hafar komust að samkomu­lagi snemma í síðustu viku um miklar aðhalds­aðgerðir í Grikk­landi gegn frekari lána­fyrir­greiðslum upp á um 86 milljarða evra. Grikkir skuld­binda sig meðal annars til þess að gera veiga­miklar breytingar á virðisauka­skatt­kerfinu, öðrum skatt­stofnum og lífeyris­kerfinu auk meiriháttar einka­væðingar. Eins og margoft hefur komið fram þá hefur ferlið verið erfitt, evru­samstarf Grikkja hefur hangið á bláþræði og allsherjar greiðslu­fall ríkisins verið yfir­vofandi. Vonir standa til að nýgert samkomulag dugi til að koma gríska efnahags­kerfinu á réttan kjöl en efasemdar­menn eru margir, meðal annars sérfræðingar AGS og stjórnmála­forystan í Grikk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár