Virði fótboltaliða í MLS hækkar um meira en 50 prósent

Hvert lið í atvinnu­manna­deildinni í fótbolta í Banda­ríkjunum, MLS, hefur aukið virði sitt um meira en 50 prósent milli ára. Hækkunin er beintengd virði sjónvarps­samninga, aukna sölu á varningi og almennt meiri áhuga en áður. Að meðaltali er virði hvers liðs nú 157 milljónir Bandaríkja­dala, eða sem nemur um tuttugu milljörðum króna. Þetta kemur fram á vef Forbes.

Mun meiri áhugi er á leikjum í MLS nú en fyrir ári síðan og er hann meðal annars rakinn til komu stór­stjarna í deildina. Á síðustu tveimur árum hafa David Villa, Kaká og Frank Lampard samið við lið í MLS, og á þessu ári bættust síðan Steven Gerrard, Didier Drogba og Andrea Pirlo í hópinn. Villa, Lampard og Pirlo leika allir með New York City, Gerrard með LA Galaxy, Kaká með Orlando City og Drogba með Montreal í Kanada.

Í grein Forbes kemur fram að Gerrard, Villa, Kaká og Lampard fái allir yfir fimm milljónir Bandaríkja­dala í árslaun, eða sem nemur 650 milljónum króna. Það gerir um 54 milljónir króna á mánuði.

Verð­mætasta lið deildarinnar er talið vera Seattle Sounders en verð­miðinn á því er 245 milljónir Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 32 milljörðum króna. Að meðaltali mæta um 40 þúsund áhorf­endur á heima­leiki Sounders, þar sem heima­maðurinn Clint Dempsey, fyrr­verandi leikmaður Tottenham og Fulham, ber fyrir­liðabandið. Liðið hefur gert stærsta auglýsinga­samning allra félaga í deildinni við Microsoft, en liðið ber merki dóttur­félagsins XBOX framan á búningum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár