Ríkasta 0,1 prósentið skuldaði nánast ekkert en átti eignir upp á 330 milljarða

Flestir lands­menn eiga þorra hreinnar eignar sinnar í steypu, hús­næð­inu sem þeir búa í. 90 pró­sent þeirra skulda rúm­lega helm­inginaf virði eigna sinna. Þannig er málum ekki háttað hjá þeim sem eiga mest.

Þau 90 pró­sent lands­manna sem eiga minnst eigið fé eru sam­an­lagt með 52,2 pró­sent eig­in­fjár­hlut­fall í heim­il­is­bók­haldi sínu, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Hópurinn, meg­in­þorri allra Íslend­inga, á eignir sem metnar voru á 4.679 millj­arða króna í lok síð­asta árs og eigið fé hans, eignir umfram skuldir, var 2.446 millj­arðar króna.

Í efsta lag­inu, hjá þeim hópi sem mest eigið fé, er staðan öðru­vísi. Hjá 224 rík­ustu fjöl­skyldum lands­ins voru eign­irnar 330,1 millj­arðar króna í lok síð­asta árs og eigið féð 325,2 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 98,5 pró­sent og skuld­irnar á bak­við eign­irnar ein­ungis 4,9 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­­son­­ar, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­­spurn Loga Ein­­ar­s­­son­­ar, þing­­manns Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, um eignir og tekjur rík­­asta hóps lands­­manna á síð­­asta ári. Svarið var birt á vef Alþingis fyrr í þessum mán­uði.

Hjá rík­asta eina pró­sent­inu, sem telur 2.240 fjöl­skyldur af þeim 243.855 sem gögn Skatts­ins ná yfir, námu eign­irnar 1.040 millj­örðum króna í lok árs 2021, og eigið féð var 995,5 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fallið var því 95,7 pró­sent og skuld­irnar á bak­við eign­irnar 44,5 millj­arðar króna.

Vert er að taka fram að rík­ustu hópar sam­fé­lags­ins eiga að þorra þeirra verð­bréfa sem eru í eigu ein­stak­linga í land­inu. Það þýðir til að mynda hluta­bréf í skráðum félögum eða hluti í einka­hluta­fé­lögum. Inni í þeim félögum geta verið miklar skuldir.

Flestir eiga sína hreinu eign í steypu

Flestir Íslend­ingar eiga þorra sinnar hreinu eignar í íbúð­ar­hús­næði sínu. Eigið fé þeirra 90 pró­sent lands­manna sem áttu minnst eigið fé um síð­ustu ára­mót í fast­eignum var 2.374 millj­arðar króna. Það þýðir að 87 pró­sent af eigin fé þeirra var bundið í fast­eignum. Hlut­fallið er mun lægra hjá efstu tíund­inni, eða 65 pró­sent. Sá hópur er líka mun lík­legri til að eiga fleiri fast­eignir en íbúð­ina sem við­kom­andi býr í.

Frá byrjun árs 2020 hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um meira en 50 pró­sent og á árinu 2021 einu saman hækk­aði það um 20 pró­sent.

Sam­kvæmt tölum sem Hag­stofan birti fyrr á þessu ári var tæp­­lega 76 pró­­sent af þeirri aukn­ingu sem varð á eigin fé í fyrra vegna hækk­­andi fast­eigna­verðs. Slík hækkun eru ekki pen­ingar í hendi hjá þeim sem eiga eina eign, og þurfa að búa í henni, þótt auður verði til á blaði sam­hliða miklum hækk­­un­­um. Flestir þurfa að kaupa sér nýja eign ef þeir selja gömlu, og nýju eign­­irnar hafa líka hækkað að jafn­­aði jafn mikið í virði. Þótt eig­in­fjár­staðan batni í opin­berum tölum þá fjölgar krón­unum sem eru til ráð­stöf­unar og fjár­fest­ingar ekki, nema að við­kom­andi skuld­setji nýju eigna­mynd­un­ina til að losa um fé.

Hægt að losa um fé í umframeignum

Þeir sem eiga fleiri en eina fast­­eign, og stunda áhætt­u­fjár­­­fest­ingar með slík­­­ar, geta hins vegatr hagn­­ast vel á svona ástandi. Og losað um þann ávinn­ing en samt átt þak yfir höf­uð­ið.

Sam­­kvæmt tölum frá Þjóð­skrá voru það á fimmta þús­und ein­stak­l­ingar og lög­­að­il­­ar, sem áttu á milli sín um 53 þús­und íbúð­ir í lok síð­asta árs. Þá áttu alls 71 ein­stak­l­ingar og 382 lög­­­að­ilar fleiri en sex íbúð­ir, 155 ein­stak­l­ingar og 101 lög­­­að­ilar áttu fimm íbúðir og 579 ein­stak­l­ingar og 165 lög­­­að­ilar áttu fjórar íbúð­­­ir. Fjöldi þeirra ein­stak­l­inga sem áttu þrjár íbúðir var 2.974 og fjöldi lög­­­að­ila sem áttu sama magn íbúða var 285. Þá áttu 16.501 ein­stak­l­ingur og 688 lög­­­að­ilar tvær íbúð­­­ir.

Það sem af er árinu 2022 hefur fjöldi þeirra íbúða sem eru í eigu aðila sem eiga fleiri en eina slíka auk­ist um 735, og hlut­falls­lega um 0,2 pró­sentu­stig af heildar­í­búð­ar­eign. Nú eru 14,6 pró­sent allra íbúða í eigu ein­hverra sem eiga fleiri en eina íbúð. Ef farið er 15 ár aftur í tím­ann, til árs­ins 2006, þá var það hlut­fall 10,6 pró­sent og fyrir árið 2003 var það ætið undir tveggja stafa tölu, allt niður í 8,1 pró­sent árið 1994.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár