Eigið fé ríkasta prósentsins á Íslandi næstum eitt þúsund milljarðar króna

Hreinn auður lands­manna óx um 578 millj­arða króna í fyrra. Ríkustu 244 fjöl­skyldur lands­ins tóku til sín rúm­lega 32 af þeim millj­örðum króna, eða tæp­lega sex pró­sent þeirra.

Ríkasta eitt pró­sent lands­manna átti 995 millj­arða króna í lok síð­asta árs í eigið fé og jók slíkt um 93,5 millj­arða króna í fyrra. Það þýðir að um 16 pró­sent alls nýs eigin fjár sem varð til í fyrra var aflað af þessum hóp. Ríkasta 0,1 pró­sent lands­manna, alls 244 fjöl­skyldur, átti 325 millj­arða króna og jók sitt eigið fé um 32,2 millj­arða króna á árinu 2021, sem þýðir að þær öfl­uðu tæp­lega sex pró­sent alls nýs eigin fjár sem var varð til á Íslandi í fyrra. Það er mesta aukn­ing í millj­örðum talið á einu ári síðan á árinu 2016, þegar mesti hag­vöxtur í ára­tugi var á Íslandi, en hann mæld­ist 6,2 pró­sent. Þar áður þarf að leita aftur til banka­góð­ær­is­ár­anna 2006 og 2007 til að finna meiri aukn­ingu á eigin fé innan árs í millj­örðum talið.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­son­ar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um eignir og tekjur rík­asta hóps lands­manna á síð­asta ári. Svarið var birt á vef Alþingis síð­degis á föstu­dag.

Eigið fé allra fram­telj­enda var 5.876 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót, sam­kvæmt svar­inu. Það eru 578 millj­örðum krónum meira en til var í eigin fé á íslenskum heim­ilum í lok árs 2020.

Af þeim fóru 218 millj­arðar króna til þeirra fimm pró­sent lands­manna sem áttu mest eigið fé allra, eða 38 pró­sent af því nýja eigið fé sem varð til á árinu 2021.

Hlut­falls­lega eiga rík­ustu fimm, eitt og 0,1 pró­sent lands­manna mjög svipað hlut­fall af hreinum eignum heild­ar­innar og í fyrra. Hlut­fallið stendur í stað hjá 0,1 pró­sent hópnum en lækkar um 0,1-0,2 pró­sentu­stig hjá hinum.

Kjarninn greindi frá því í sumar að alls 54,4 pró­sent af þeim nýja auð sem varð til í fyrra hafi lent hjá rík­ustu tíund lands­manna. Þegar þróun á eignum og skuldum þjóð­ar­innar er skoðað aftur í tím­ann kemur í ljós að á árunum 2010 til 2020, á einum ára­tug, tók þessi efsta tíund að með­al­tali til sín 43,5 pró­sent af öllum nýjum auð sem varð til á ári. Því átti sú þróun sér stað á síð­asta ári að rík­ustu tíu pró­sent lands­manna tóku til sín mun hærra hlut­fall af nýjum auð en hóp­ur­inn hefur að jafn­aði gert ára­tug­inn á und­an.

Við það jókst mis­skipt­ing í íslensku sam­fé­lagi.

Heimatilbúin bóla á eignarmörkum

Ástæðu þessa ástands má að stóru leyti finna í við­bragði á árunum 2020 og 2021 vegna efna­hags­legra afleið­inga kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins. Stjórn­­völd og Seðla­­banki Íslands gripu til marg­hátt­aðra aðgerða sem hleyptu súr­efni inn í hag­­kerf­ið. Aðgerð­irnar fólu meðal ann­ars í sér marg­hátt­aðar styrkt­­ar­greiðslur til fyr­ir­tækja og veit­ingu á vaxta­­lausum lánum í formi frestaðra skatt­greiðslna. Þá afnam Seðla­­banki Íslands hinn svo­­kall­aða sveiflu­­jöfn­un­­ar­auka sem jók útlána­­getu banka lands­ins um mörg hund­ruð millj­­arða króna og stýri­vextir voru lækk­­aðir niður í 0,75 pró­­sent. Þeir höfðu aldrei verið lægri. Þessar örv­un­ar­að­­gerðir leiddu til mik­illar til­­­færslu á fjár­­munum til fjár­­­magns­eig­enda, enda skap­að­ist bólu­á­stand á íbúða- og hluta­bréfa­mark­aði. Heild­­ar­fjár­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­uðu um 57 pró­­sent milli áranna 2020 og 2021, eða alls um 65 millj­­arða króna, og voru 181 millj­arðar króna í heild.

Flestir lands­menn, utan þeirra sem til­heyra eign­ar­mesta hópnum, eiga þó að uppi­stöðu eina teg­und eigna sem hefur vaxið mikið í virði, fast­eign­ina sem þeir búa í. Frá byrjun árs 2020 hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda hækkað um meira en 50 pró­sent og á árinu 2021 einu saman hækk­aði það um 20 pró­sent. Heild­ar­vísi­tala hluta­bréfa hækk­aði um 40 pró­sent í fyrra. Öll félögin á Aðal­mark­aði Kaup­hallar Íslands hækk­uðu í verði. Arion banki, sem hækk­aði mest, tvö­fald­að­ist í virði.

Samkvæmt tölum sem Hag­stofan birti fyrr á þessu ári var tæp­lega 76 pró­sent af þeirri aukn­ingu sem varð á eigin fé í fyrra vegna hækk­andi fast­eigna­verðs. Slík hækkun eru ekki pen­ingar í hendi hjá þeim sem eiga eina eign, og þurfa að búa í henni, þótt auður verði til á blaði sam­hliða miklum hækk­un­um. Flestir þurfa að kaupa sér nýja eign ef þeir selja gömlu, og nýju eign­irnar hafa líka hækkað að jafn­aði jafn mikið í virði. Þótt eig­in­fjár­staðan batni í opin­berum tölum þá fjölgar krón­unum sem eru til ráð­stöf­unar og fjár­fest­ingar ekki, nema að við­kom­andi skuld­setji nýju eigna­mynd­un­ina til að losa um fé.

Þeir sem geta leyst út hækkandi eignarverð

Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­­­­­­­tí­und­um, sem fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti á rík­­­­­­­­is­­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­fundi 22. júní síð­­­­­­­­ast­lið­inn, að heild­­­­­­­­ar­fjár­­­­­­­­­­­­­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­­­­­­­uðu alls um 57 pró­­­­­­­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­­­­­­­arða króna. Mest hækk­­­­­­­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­­­­­­­arðar króna á árinu 2021. Það eru pen­ingar sem eig­endur bréf­anna gátu losað og ráð­stafað á ný.

Þeir sem eiga fleiri en eina fast­eign, og stunda áhættu­fjár­fest­ingar með slík­ar, geta líka hagn­ast vel á svona ástandi. Og losað um þann ávinn­ing en samt átt þak yfir höf­uðið.

Sam­kvæmt tölum frá Þjóðskrá voru það á fimmta þús­und ein­stak­lingar og lög­að­il­ar, sem áttu á milli sín um 53 þús­und íbúð­ir í lok síð­asta árs. Þá áttu alls 71 ein­stak­l­ingar og 382 lög­­að­ilar fleiri en sex íbúð­ir, 155 ein­stak­l­ingar og 101 lög­­að­ilar áttu fimm íbúðir og 579 ein­stak­l­ingar og 165 lög­­að­ilar áttu fjórar íbúð­­ir. Fjöldi þeirra ein­stak­l­inga sem áttu þrjár íbúðir var 2.974 og fjöldi lög­­að­ila sem áttu sama magn íbúða var 285. Þá áttu 16.501 ein­stak­l­ingur og 688 lög­­að­ilar tvær íbúð­­ir.

Það sem af er árinu 2022 hefur fjöldi þeirra íbúða sem eru í eigu aðila sem eiga fleiri en eina slíka auk­ist um 735, og hlut­falls­lega um 0,2 pró­sentu­stig af heildar­í­búð­ar­eign. Nú eru 14,6 pró­sent allra íbúða í eigu ein­hverra sem eiga fleiri en eina íbúð. Ef farið er 15 ár aftur í tím­ann, til árs­ins 2006, þá var það hlut­fall 10,6 pró­sent og fyrir árið 2003 var það ætið undir tveggja stafa tölu, allt niður í 8,1 pró­sent árið 1994.

Hlutfall ríkasta 0,1 prósentsins í tekjum ekki verið hærra síðan 2007

Í tölum sem birtar voru fyrir helgi var einnig farið yfir tekjur allra rík­ustu hópa lands­ins á síð­asta ári.

Kjarninn greindi frá því á laug­ar­dag að hlut­fall heild­ar­tekna með fjár­magnstekjum hjá tekju­hæsta hluta fram­telj­enda hafi auk­ist gríð­ar­lega á árinu 2021. Það fór úr því að vera 2,6 pró­sent 2020 í 4,2 pró­sent í fyrra. Hlut­fallið hefur ekki verið hærra síðan á árinu 2007, þegar íslenska banka­góð­ærið var á hápunkti sín­um. Það hrundi svo til grunna ári síðar með miklum afleið­ingum fyrir margt venju­legt fólk á Íslandi.Ef frá eru talin árin 2003, 2005, 2006 og 2007, þegar íslenska banka­kerfið þand­ist út af erlendu lánsfé sem var svo velt áfram, að mestu til þröngs hóps fjár­festa úr við­skipta­manna­hópi bank­anna, þá hefur hlut­deild rík­ustu 0,1 pró­sent lands­manna í heild­ar­tekjum á einum ári aldrei verið hærri.

Rík­asta 0,1 pró­sent lands­manna, alls um 244 fjöl­skyld­ur, jók tekjur sínar um 40 millj­arða króna á árinu 2021. Þær voru 54 millj­arðar króna árið 2020 en 94 millj­arðar króna í fyrra. Langstærstur hluti þess­ara tekna voru fjár­magnstekj­ur, sem hóp­ur­inn hafði af því að ávaxta fjár­muni sína til dæmis í hluta­bréfum eða fast­eign­um. Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­­­­­­­arð króna í fjár­­­­­­­­­­­­­­­magnstekjur í fyrra. Það þýðir að rík­asta 0,1 pró­sent lands­manna tók til sín 20 pró­sent allra fjár­magnstekna sem urðu til á síð­asta ári á meðan að 99,9 pró­sent þjóð­ar­innar þén­aði hin 80 pró­sent­in.

Verð­bréfa­eign van­metin

Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í sumar átti rík­asta tíund lands­manna 86 pró­sent allra verð­bréfa sem voru í eigu heim­ila um síð­ustu ára­mót.

Í tölum Hag­­stofu Íslands um eigið fé lands­­manna er ekki tekið til­­lit til eigna þeirra í líf­eyr­is­­sjóðum lands­ins, sem sam­eig­in­­lega halda á 6.565 millj­­örðum króna af eignum lands­­manna, og eiga stóran hluta af öllum verð­bréfum sem gefin eru út hér­­­lend­­is.

Þá er virði hluta­bréfa í inn­­­lendum og erlendum hluta­­fé­lögum líka reiknað á nafn­virði, ekki mark­aðsvirði. Það þýðir t.d. að ef ein­stak­l­ingur keypti hlut í skráðu félagi sem hefur tíf­ald­­ast í verði fyrir ein­hverjum árum á 100 milljón króna þá er það virðið sem reiknað er inn í tölur Hag­­stof­unn­­ar, ekki einn millj­­arður króna, sem er verðið sem við­kom­andi myndi fá ef hann seldi hluta­bréf­in. Þetta skekkir eðli­­lega mjög allar upp­­­gefnar tölur um eigið fé, enda verð­bréf að meg­in­­upp­i­­­stöðu í eigu þess hluta þjóð­­ar­innar sem á mestar eign­­ir.

Það sást skýrt í áður­nefndri grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­tí­undum sem fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti á rík­­is­­stjórn­­­ar­fundi í sumar.

Þar kom fram að þau tíu pró­­sent lands­­manna sem höfðu mestar fjár­­­magnstekjur á síð­­asta ári tóku til sín 81 pró­­sent allra fjár­­­magnstekna ein­stak­l­inga á árinu 2021. Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­arð króna í fjár­­­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­­skyld­­ur, var með tæp­­lega 147 millj­­arða króna í fjár­­­magnstekjur á síð­­asta ári.

Heild­­ar­fjár­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­uðu um 57 pró­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár