Ríkasta 0,1 prósentið hefur ekki tekið til sín stærri hluta af tekjukökunni síðan 2007

Þær 244 fjöl­skyldur sem höfðu mestar tekjur á síð­asta ári þén­uðu alls 36 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2021. Það voru 20 pró­sent af öllum slíkum tekjum sem urðu til á því ári. Hópurinn þén­aði 4,2 pró­sent af öllum tekjum sem urðu til í land­inu.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur setið að völdum síðan seint á árinu 2017. Hlutfall allra ríkustu landsmanna í heildartekjum þjóðarinnar hefur aukist milli allra ára sem hún hefur setið.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur setið að völdum síðan seint á árinu 2017. Hlutfall allra rík­ustu lands­manna í heild­ar­tekjum þjóð­ar­innar hefur auk­ist milli allra ára sem hún hefur setið. Mynd: Eyþór Árnason

Ríkasta 0,1 pró­sent lands­manna, alls um 244 fjöl­skyldur, jók tekjur sínar um 40 millj­arða króna á síð­asta ári. Þær voru 54 millj­arðar króna árið 2020 en 94 millj­arðar króna í fyrra. Langstærstu hluti þess­ara tekna voru fjár­magnstekjur, sem hóp­ur­inn hafði af því að ávaxta fjár­muni sína til dæmis í hluta­bréfum eða fast­eignum. Slíkar tekjur námu 36 millj­örðum króna sem þýðir að hver fjöl­skylda jók tekjur sínar að með­al­tali um næstum 150 millj­ónir króna á einu ári.

Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­­­­­­arð króna í fjár­­­­­­­­­­­­­magnstekjur í fyrra. Það þýðir að rík­asta 0,1 pró­sent lands­manna tók til sín 20 pró­sent allra fjár­magnstekna sem urðu til á síð­asta ári á meðan að 99,9 pró­sent þjóð­ar­innar þén­aði hin 80 pró­sentin.

Hlutfall heild­ar­tekna með fjár­magnstekjum hjá tekju­hæsta hluta fram­telj­enda jókst gríð­ar­lega á árinu 2021. Það fór úr því að vera 2,6 pró­sent 2020 í 4,2 pró­sent í fyrra. Hlut­fallið hefur ekki verið hærra síðan á árinu 2007, þegar íslenska banka­góð­ærið var á hápunkti sínum. Það hrundi svo til grunna ári síðar með miklum afleið­ingum fyrir margt venju­legt fólk á Íslandi. Ef frá eru talin árin 2003, 2005, 2006 og 2007, þegar íslenska banka­kerfið þand­ist út af erlendu lánsfé sem var svo velt áfram, að mestu til þröngs hóps fjár­festa úr við­skipta­manna­hópi bank­anna, þá hefur hlut­deild rík­ustu 0,1 pró­sent lands­manna í heild­ar­tekjum á einum ári aldrei verið hærri.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um eignir og tekjur rík­asta hóps lands­manna á síð­asta ári. Svarið var birt á vef Alþingis síð­degis í gær.

Stjórn­völd gripu til marg­hátt­aðra efna­hags­að­gerða á árunum 2020 og 2021 sem leiddu til þess að hluta­bréfa- og fast­eigna­mark­aðir hækk­uðu mikið. Aðgerð­irnar fólu meðal ann­ars í sér marg­hátt­aðar styrkt­ar­greiðslur til fyr­ir­tækja og veit­ingu á vaxta­lausum lánum í formi frestaðra skatt­greiðslna. Þá afnam Seðla­banki Íslands hinn svo­kall­aða sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem jók útlána­getu banka lands­ins um mörg hund­ruð millj­arða króna og stýri­vextir voru lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent. Þeir höfðu aldrei verið lægri.

Þessar örv­un­arað­gerðir gerðu það að verkum að mikil til­færsla varð á fjár­munum til fjár­magns­eig­enda.

Stærstur hluti vegna sölu hlutabréfa

Svipað er uppi á ten­ingnum þegar horft er á rík­asta eitt pró­sent lands­manna. Þar er um að ræða um 2.440 fjöl­skyldur. Tekjur þess hóps fóru úr 161 millj­arði króna árið 2021 í 226 millj­arða króna í fyrra, og juk­ust þar með um 65 millj­arða króna. Alls voru 54 millj­arðar króna af þeirri tölu fjár­magnstekjur, sem þýðir að 30 pró­sent fjár­magnstekna lenti hjá rík­asta einu pró­senti lands­manna á síð­asta ári.

Hlutfall rík­asta eins pró­sents lands­manna af heild­ar­tekjum jókst úr 7,9 pró­sent í tíu pró­sent í fyrra. Það hefur ekki verið hærra síðan á árinu 2008 og utan banka­góð­ær­is­ár­anna 2003 til 2008 hefur hóp­ur­inn aldrei tekið til sín stærri sneið af tekjukök­unni innan árs á Íslandi.

Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­­­­­­tí­und­um, sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti á rík­­­­­­­is­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­ar­fundi 22. júní síð­­­­­­­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­­­­­­­sent lands­­­­­­­manna sem höfðu mestar fjár­­­­­­­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­­­­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­­­­­­­sent allra fjár­­­­­­­­­­­­­magnstekna ein­stak­l­inga á árinu 2021.

Samkvæmt þeim tölum sem birtar voru í gær liggur fyrir að þeim var veru­lega mis­skipt milli efstu tíund­ar­innar. Ríkasta eitt pró­sentið tók til sín 31 pró­sent af tekjum vegna fjár­magns innan þeirrar tíundar á síð­asta ári.

Heild­­­­­­­ar­fjár­­­­­­­­­­­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­­­­­­uðu alls um 57 pró­­­­­­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­­­­­­arða króna. Mest hækk­­­­­­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­­­­­­arðar króna á árinu 2021.

Raðstöfunartekjur efsta tekju­hóps­ins hækk­uðu lang­mest

Fjár­­­­­­­magnstekjur dreifast mun ójafnar en launa­­­­tekj­­­­ur. Þær lendi mun frekar hjá tekju­hæstu hópum lands­ins, sem eiga mestar eign­­­­ir. Alls um níu pró­­­sent þeirra sem telja fram skatt­greiðslur á Íslandi fá yfir höfuð fjár­­­­­magnstekj­­­ur. Fjár­­­­­magnstekju­skattur er líka 22 pró­­­­­sent, sem er mun lægra hlut­­­­­fall en greitt er af t.d. launa­­­­­tekj­um, þar sem skatt­hlut­­­­­fallið er frá 31,45 til 46,25 pró­­­­­sent eftir því hversu háar tekj­­­­­urnar eru.

Þetta þýðir að ráð­­­­stöf­un­­­­ar­­­­tekjur efsta tekju­hóps­ins hækk­­­­uðu mun meira hlut­­­­falls­­­­lega en ann­­­­arra tekju­hópa ofan á það að tekjur þess hóps voru meiri fyr­­­­ir. Krón­unum í vasa þeirra sem höfðu miklar fjár­­­­­­­magnstekjur fjölg­aði því umtals­vert meira en í vasa þeirra sem þáðu fyrst og síð­­­­­­­ast launa­­­­tekjur á síð­­­­asta ári.

Í nýlegu Mán­að­­­­­ar­yf­­­­­ir­liti ASÍ kom fram að skatt­­­­­byrði hafi heilt yfir auk­ist í fyrra þegar hún er reiknuð sem hlut­­­­­fall tekju- og fjár­­­­­­­­­magnstekju­skatts af heild­­­­­ar­­­­­tekj­­­­­um. Hún fór úr 22,4 pró­­­­­sent af heild­­­­­ar­­­­­tekjum í 23,4 pró­­­­­sent.

Skatt­­­­byrði efstu tíund­­­­­ar­innar dróst hins vegar sam­­­­­an. Árið 2020 borg­aði þessi hópur 28,9 pró­­­­­sent af tekjum sínum í skatta en 27,3 pró­­­­­sent í fyrra. Skatt­­­­­byrði allra ann­­­­­arra hópa, hinna 90 pró­­­­­sent heim­ila í land­inu, jókst á sama tíma.

Ríkustu 244 fjölskyldurnar myndu greiða 1,1 milljarði meira á ári

Ef fjár­magnstekju­skattur yrði hækk­aður úr 22 í 25 pró­sent myndi það skila tæp­lega 5,3 millj­örðum króna í tekju­aukn­ingu fyrir rík­is­sjóð á ári. Af þeirri upp­hæð myndu þau tíu pró­sent lands­manna sem eru með hæstu tekj­urnar greiða 4,6 millj­arða króna, eða tæp 87 pró­sent. Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem skrif­stofa skatta­mála fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins vann að beiðni efna­hags- og við­skipta­nefndar og var skilað til hennar 17. októ­ber síð­ast­lið­inn. Í minn­is­­­­­­­blað­inu kom fram að hækk­­­­­­­andi skatt­greiðslur efstu tekju­­­­­­­tí­und­­­­­­­ar­innar séu fyrst og síð­­­­­­­­­­­­­ast til­­­­­­­komnar vegna þess að fjár­­­­­­­­­­­­­magnstekjur þeirra hafa stór­­­­­­­auk­ist, enda greiðir þessi hópur 87 pró­­­­­­­sent af öllum fjár­­­­­­­­­­­­­magnstekju­skatti.

Miðað við þessar tölur myndi rík­asta eitt pró­sent lands­manna greiða um 1,6 millj­arða króna af þess­ari aukn­ingu ef ráð­ist yrði í hækk­un­ina. Þar af myndi rík­asta 0,1 pró­sentið, 244 fjöl­skyldur, greiða um 1,1 millj­arð króna, eða rétt tæp­lega fjórð­ung þeirra við­bót­ar­skatt­tekna sem rík­is­sjóður myndi afla með því að fara þá leið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár